

Sérfræðingur í rekstraráhættu
Viltu taka þátt í að móta og efla áhættustýringu í einu stærsta fjármálafyrirtæki landsins? Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi til að ganga til liðs við deildina rekstraráhættu innan sviðs Áhættustýringar Landsbankans.
Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni á sviði áhættustýringar og mun viðkomandi taka þátt í að greina, meta og upplýsa um rekstraráhættu í starfsemi bankans. Mikilvægur hluti starfsins er að taka þátt í innleiðingu ytra regluverks sem tengist rekstraráhættu.
· Greining og þróun á áhættumati rekstraráhættu þvert á svið bankans
· Fylgjast með ytra regluverki sem snýr að rekstraráhættu og stuðla að því að bankinn starfi í samræmi við það
· Þátttaka í þróun lykiláhættuvísa og annarra áhættumælikvarða
· Skýrslugerð um stöðu rekstraráhættu fyrir stjórnendur, stjórn og eftirlitsaðila
· Taka þátt í greiningu og ráðgjöf vegna rekstraráhættu
· Háskólamenntun sem nýtist í starfi
· Reynsla af áhættustýringu innan fjármálafyrirtækja er kostur
· Frumkvæði, gagnrýnin hugsun og framúrskarandi samskiptahæfileikar
· Tæknileg færni og hæfni til að miðla efni í ræðu og riti, bæði á íslensku og ensku
· Þekking á regluverki tengdu rekstraráhættu er kostur (DORA, leiðbeinandi tilmæli EBA













