
Landsnet hf.
Við erum lykilinnviður þjóðarinnar og allt okkar starf snýst um að flytja orku sem drífur áfram lífsgæði og sköpunarkraft samfélagsins til framtíðar.Við erum líka framsækið þekkingarfyrirtæki sem býður kraftmiklu starfsfólki spennandi verkefni við aðstæður þar sem umhyggja, jafnrétti og öryggi eru í fyrirrúmi.

Sérfræðingur í mannauðsmálum
Vilt þú hafa áhrif á framtíð mannauðsmála í einu mikilvægasta innviðafyrirtæki landsins?
Við hjá Landsneti viljum vera í farabroddi í mannauðsmálum, þar sem gögn, tækni og mannleg nálgun vinna saman að því að skapa framúrskarandi starfsumhverfi. Við leitum að drífandi og tæknilega sterkum sérfræðingi sem hefur áhuga á að þróa og bæta mannauðsferla með framtíðina að leiðarljósi.
Starfið
Þú tekur virkan þátt í að móta og þróa mannauðsstarf til framtíðar, með áherslu á ráðningar, stafræna þróun, sjálfvirknivæðingu og gæðamál. Markmiðið er að bæta upplifun umsækjenda, starfsfólks og stjórnenda og auka skilvirkni í daglegu starfi.
Þú vinnur náið með mannauðsteymi og stjórnendum þvert á fyrirtækið að umbótum, þróun lausna og stefnumótun.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með ráðningum og stuðningur við stjórnendur í ráðningarferlum.
- Þróun og umbætur á mannauðsferlum og upplifun hagaðila.
- Utanumhald og þróun mannauðskerfa og stafrænna lausna.
- Greiningar, árangursmælingar og eftirfylgni á lykiltölum mannauðsmála.
- Gæðamál, mótun ferla og önnur umbótaverkefni.
- Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur og starfsfólk.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Að minnsta kosti þriggja ára reynsla úr sambærilegu hlutverki.
- Tæknileg færni og áhugi á stafrænum lausnum.
- Greiningarhæfni og gagnadrifin hugsun.
- Framúrskarandi samskiptafærni, hæfni til að vinna í teymi og miðla upplýsingum á uppbyggilegan hátt.
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri.
Auglýsing birt17. apríl 2026
Umsóknarfrestur27. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík
Rangárvöllum, 603 Akureyri
Miðás 7A, 700 Egilsstaðir
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (6)

HR Coordinator - Temporary position
JBT Marel

Mannauðsráðgjafi
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Mannauðsráðgjafi - sumarstarf
Sumarstörf - Kópavogsbær

Verkefnastjóri í mannauðs- og launadeild Akraneskaupstaðar
Akraneskaupstaður

Mannauðsráðgjafi í heimaþjónustu Austurmiðstöð
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sérfræðingur í mannauðsmálum / HR Business Partner
Alcoa Fjarðaál