Lyfja
Lyfja
Lyfja

Sérfræðingur á vörusviði

Við leitum að drífandi liðsfélaga á vörusvið Lyfju í fjölbreytt hlutverk sérfræðings í greiningum.

Vörusvið hefur mikilvægan snertiflöt við allar okkar verslanir og leggur metnað sinn í hágæða vöruúrval, skilvirkar áætlanir, gagnlegar greiningar og stuðning við verslanir Lyfju.

Lyfjuliðið er fjölbreyttur hópur sérþjálfaðs starfsfólks sem á það sameiginlegt að vera umhugað um þitt heilbrigði og vellíðan. Við erum í kringum 400 manns og á 45 staðsetningum um allt land. Við vinnum að því markmiði að lengja líf og auka lífsgæði.

HELSTU VERKEFNI

  • Eftirlit með framlegð, verðlagningu og birgðum á skilgreindum vöruflokkum
  • Almennar greiningar á markaði og vöruflokkum
  • Þátttaka í áætlunargerð og eftirfylgni með áætlunum
  • Þróun og viðhald sölu- og birgðaskýrslna
  • Frumkvæði til þess að sjálfvirknivæða, miðla og bæta gæði og aðgengi að gögnum
  • Skipulagning, framkvæmd og eftirfylgni söluhvetjandi aðgerða í samstarfi við markaðssvið

HÆFNISKRÖFUR

  • Reynsla af starfi í greiningum og/eða vörustýringu er kostur
  • Framúrskarandi færni í Excel, Pivot töflum og faglegri framsetningu gagna
  • Reynsla af Business Central/Navision og PowerBI er mikill kostur
  • Áhugi á heilbrigði og vellíðan
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi

Umsóknarfrestur er til og með 3. júlí nk.

Nánari upplýsingar veitir:

Kristján Pétur Sæmundsson, Brú Talent, [email protected]

Hvers vegna Lyfja?

Lyfja er leiðandi fyrirtæki og starfar sem hluti af heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að lengja líf og auka lífsgæði. Við leggjum áherslu á að skapa eftirsóknarverðan vinnustað þar sem góður starfsandi, hæfni og þekking starfsfólks nýtist sem best. Við bjóðum upp á faglega fræðslu og leggjum áherslu á jafna möguleika til starfsþróunar. Auk þess styðjum við starfsfólk og viðskiptavini á sinni heilsuvegferð og leggjum áherslu á sveigjanleika og jafnvægi vinnu og einkalífs.

Auglýsing birt25. júní 2025
Umsóknarfrestur3. júlí 2025
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Dalvegur 10-14, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar