Lyfja
Lyfja
Lyfja

Ertu Lyfjafræðingur, viltu koma í Lyfjuliðið?

Viltu starfa með það að markmiði alla daga að lengja líf og auka lífsgæði Íslendinga? Við leitum að jákvæðum, þjónustulunduðum og lausnamiðuðum lyfjafræðingi til starfa í verslunum Lyfju. Starfið er lifandi, skemmtilegt og krefjandi.

Tækifæri og sveigjanleiki

Um er að ræða flakkarastarf, sem þýðir að þú færð að kynnast ólíkum starfsstöðvum, bæði á höfuðborgarsvæðinu og víðar um landið ef hentar. Starfið hentar vel fyrir þá sem vilja fjölbreytni og sveigjanleika í starfi.

Hvað felst í starfinu?

  • Fagleg ráðgjöf um lyf og notkun þeirra. Þú ert fyrsti viðmælandi margra sem leita upplýsinga og stuðnings.

  • Afgreiðsla lyfseðla með skýrum verkferlum og góðu samstarfi.

  • Umsjón með afgreiðslu viðskiptavina, pöntunum og frágangi lyfja.

Hver ert þú?

  • Þú ert með háskólapróf í lyfjafræði og gilt starfsleyfi.

  • Góð þjónustulund, góð mannleg samskipti og fagleg framkoma eru þínar sterku hliðar.

  • Þú ert áreiðanlegur og skipulagður lyfjafræðingur sem sækist eftir fjölbreyttum verkefnum og teymisvinnu.

Umsóknarfrestur er til og með 27. júní

Nánari upplýsingar veitir Anna Sólmundsdóttir, lyfjafræðingur og sérfræðingur á mannauðssviði, [email protected], sími: 693-2216.

Við förum með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarupplýsingar.

Hvers vegna Lyfja?

Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að lengja líf og auka lífsgæði. Við leggjum áherslu á að skapa eftirsóknarverðan vinnustað þar sem góður starfsandi, hæfni og þekking starfsfólks nýtist sem best. Við bjóðum upp á faglega fræðslu og leggjum áherslu á jafna möguleika til starfsþróunar. Auk þess styðjum við starfsfólk og viðskiptavini á sinni heilsuvegferð og leggjum áherslu á sveigjanleika og jafnvægi vinnu og einkalífs.

Auglýsing birt9. júní 2025
Umsóknarfrestur27. júní 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Dalvegur 10-14, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar