

Senior hugbúnaðarsérfræðingur
Hugbúnaðarþróun Orkuveitunnar leitar að reyndum hugbúnaðarsérfræðingi til að taka þátt í mikilvægri tæknilegri umbreytingu Orkuveitunnar. Hlutverk okkar er að þróa og nútímavæða hugbúnaðarlausnir fyrir Orkuveituna og dótturfélög hennar. Verkefnin snerta mikilvæga innviði samfélagsins og fela í sér þróun nýrra lausna, endurhönnun samþættinga, sjálfvirknivæðingu og markvissa notkun gervigreindar.
Við leitum að einstaklingi sem hefur reynslu af hugbúnaðarþróun í flóknu umhverfi, getur skapað yfirsýn, greint tækifæri til umbóta og komið traustum lausnum í rekstur.
Ef þú ert manneskjan sem opnar gagnagrunna sem enginn skilur, finnur út hvernig hlutirnir virka, talar við réttu sérfræðingana, skjalfestir og kemur hlutunum áfram, þá viljum við heyra frá þér.
-
Taka þátt í nútímavæðingu samþættingaumhverfis samstæðunnar og uppbyggingu nýrra Domain APIs.
-
Þróa og innleiða event-driven lausnir þar sem þær eiga við
-
Stuðla að samræmingu þróunarferla, verkfæra og vinnubragða þvert á Orkuveituna.
-
Nýta gervigreind til að efla þróun, prófanir, greiningu og skjölun.
-
Styrkja öryggi, sjálfvirknivæðingu og gæði í hugbúnaðarþróun.
Enska
Íslenska









