
Rafvirki / Rafeindavirki til starfa í Tæknideild
Tækifæri fyrir metnaðarfullan rafvirkja/rafeindavirkja
Nortek leitar að drífandi einstaklingi til starfa í tækniteymi fyrirtækisins við uppsetningu, þjónustu og viðhald á fjölbreyttum öryggis- og eftirlitslausnum.
Í boði er krefjandi og fjölbreytt starf í skemmtilegu vinnuumhverfi þar sem þú færð að vinna með nýjustu tækni, þróast faglega og leggja þitt af mörkum til að gera samfélagið öruggara. Starfið felur í sér samskipti við viðskiptavini og náið samstarf við samhentan hóp tæknimanna.
Við leitum að einstaklingi sem:
- Býr yfir reynslu af sambærilegum störfum
- Er lipur í mannlegum samskiptum
- Sýnir frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Hefur ríka þjónustulund og tekur ábyrgð á verkefnum
Hjá okkur færð þú tækifæri til að þróast og vaxa í starfi. Við bjóðum upp á reglulega fræðslu og þjálfun í nýjustu lausnum þannig að þú sért alltaf á toppnum í faginu.
Við leggjum mikla áherslu á jákvætt og hvetjandi vinnuumhverfi þar sem gott samstarf og húmor er í hávegum haft, og tryggjum þér faglegan stuðning svo þú getir tekist á við spennandi og krefjandi verkefni.
Almennur vinnutími er frá kl. 8–16 virka daga og 8–15 á föstudögum. Starfsfólk hefur jafnframt aðgang að fyrirtækjabíl til að komast í og úr vinnu, auk búnaðar og tækja í hæsta gæðaflokki sem gera starfið bæði skilvirkt og ánægjulegt.
Umsækjendur þurfa að geta framvísað hreinu sakavottorði. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.
- Setja upp, prófa og koma í gagnið nýjustu öryggislausnir sem bæta öryggi viðskiptavina okkar – svo sem aðgangsstýringar, innbrotakerfi, brunaviðvörunarkerfi og myndavélakerfi.
- Þjóna og viðhalda búnaði til að tryggja örugga og áreiðanlega virkni.
- Gerina bilanir og leita lausna fljótt og faglega.
- Samstarf og samvinna með öðrum sérfræðingum innan fyrirtækisins.
- Menntun í rafeindavirkjun, rafvirkjun eða sambærileg menntun
- Sjálfstæði vinnubrögð
- Almenn tækniþekking og áhugi, nauðsynlegt.
- Færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
- Lausnamiðað hugarfar
- Góð tölvukunnátta og færni í uppsetningu forrita













