Bílaraf ehf
Bílaraf ehf
Bílaraf ehf

Rafvélavirki / Rafeindarvirki / Bifvélavirki / Viðgerðamaður, framtíðarstarf

Vegna aukinna verkefna ætlum við að bæta við okkur starfsmanni.

Bílaraf rekur verslun, innflutning og verkstæði þar sem starfsmenn taka þátt í öllum störfum eftir þekkingu og þörfum.

T.d, almennar bilanagreiningar, bílaviðgerðir, kerruviðgerðir, rafmagnsviðgeriðr / ísetning í bíla og viðgerðir á ferðavögnum.

Vinnutími 08:00 - 16:30 mán - fim, og 08:00 - 14:30 á föstudögum.

Nánari upplýsingar veitir Pétur J Halldórsson á [email protected]

Helstu verkefni og ábyrgð

Greining bilana, úrlausnir, viðgerðir og ísetningar sem snúa sérstaklega að rafkerfi ásamt fleiru.

Rafmagnsviðgerðir í bílum, ferðavögnum, kerrum og fl.

Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur

Menntun eða reynsla í bifvélavirkjun, bílarafmagni eða rafvélavirkjun áskilin

Heiðarleg, áreiðanleg og vönduð vinnubrögð

Geta sýnt frumkvæði í starfi og unnið sjálfstætt

Gilt bílpróf

Almenn tölvukunnátta

Góð íslensku og enskukunnátta

Við bjóðum uppá sveigjanlegan vinnutíma og góð laun í boði fyrir réttan aðila

Auglýsing birt9. maí 2026
Umsóknarfrestur17. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Flatahraun 25, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.BifvélavirkjunPathCreated with Sketch.BílarafmagnsviðgerðirPathCreated with Sketch.RafeindavirkjunPathCreated with Sketch.Rafvélavirkjun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar