Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa

Ráðgjafi á meðferðarheimilinu Lækjarbakka - hlutastarf

Vilt þú taka þátt í krefjandi og gefandi starfi með unglingum?

Barna- og fjölskyldustofa auglýsir laust til umsóknar hlutastarf ráðgjafa á meðferðarheimilinu Lækjarbakka. Heimilið er starfrækt í Gunnarsholti, rétt utan við Hellu. Starfið heyrir undir forstöðumann og deildarstjóra heimilisins. Um er að ræða 50% stöðu í vaktavinnu. Ráðning er tímabundin til eins árs með möguleika á framlengingu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Einstaklingsbundinn stuðningur við skjólstæðinga og meðferðarvinna í samvinnu við stjórnendur og sálfræðinga.
  • Vinna að tómstundastarfi, starfsþjálfun og stuðningi í námi skjólstæðinga.
  • Samskipti við foreldra og samstarfsaðila.
  • Vinna eftir verklagsreglum og þeim gagnreyndu aðferðum sem unnið er eftir á heimilinu.
  • Umönnun, stuðningur við athafnir daglegs lífs og tryggja öryggi skjólstæðinga.
  • Almenn heimilisstörf.
  • Önnur verkefni í samráði við stjórnendur. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla og/eða menntun sem nýtist í starfi.
  • Áhugi og/eða reynsla af að vinna meðferðferðarvinnu með unglingum.
  • Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum er nauðsynleg.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Sveigjanleiki og þjónustulund.
  • Gott líkamlegt atgervi og andlegt heilbrigði.
  • Góð íslenskukunnátta í mæltu og rituðu máli.
  • Enskukunnátta æskileg.
  • Gild ökuréttindi. 
Auglýsing birt2. mars 2026
Umsóknarfrestur12. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Lækjarbakki í Gunnarsholti
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar