
Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa er leiðandi í þjónustu í þágu farsældar barna. Hjá stofnuninni starfa um 150 manns í fjölbreyttum störfum á starfsstöðvum á höfuðborgarsvæðinu, á Hellu og í Eyjafjarðarsveit. Stofnunin heyrir undir Barna- og menntamálaráðuneytið.
Meginverkefni Barna- og fjölskyldustofu er að veita fræðslu, ráðgjöf og handleiðslu á sviði barnaverndar og samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna.
Stofnunin leggur mat á væntanlega fósturforeldra, heldur fósturforeldranámskeið ásamt því að veita fósturforeldrum ráðgjöf og stuðning.
Veitir börnum, innan barnaverndar, þjónustu sem lýtur að sérhæfðum meðferðarúrræðum (Stuðlar, Lækjarbakki og Bjargey), fjölkerfameðferð MST og starfsemi Barnahúss.
Auk þess leggur stofan áherslu á fræðilegar rannsóknir og stuðning við þróunar- og rannsóknarstarf ásamt uppsetningu og innleiðingu á samræmdum gagnagrunni í barnavernd á landsvísu.
Meginmarkmið Barna- og fjölskyldustofu:
• Veita framúrskarandi þjónustu í þágu farsældar barna með áherslu á gæðaþróun og stafrænar lausnir.
• Vera í fararbroddi í fræðslu og leiðsögn við þá sem veita börnum og fjölskyldum þjónustu.
• Veita fjölbreytt og sérhæfð úrræði fyrir börn byggð á gagnreyndum aðferðum.
• Stofnunin búi yfir fjölbreyttum starfshóp sem er faglegur og kraftmikill.

Ráðgjafi á meðferðarheimilinu Lækjarbakka
Vilt þú taka þátt í krefjandi og gefandi starfi með unglingum?
Barna- og fjölskyldustofa auglýsir lausar til umsóknar 10 stöður ráðgjafa á meðferðarheimilinu Lækjarbakka. Heimilið er starfrækt í Gunnarsholti, rétt utan við Hellu. Starfið heyrir undir forstöðumann og deildarstjóra heimilisins. Um er að ræða 100% stöður í vaktavinnu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Einstaklingsbundinn stuðningur við skjólstæðinga og meðferðarvinna í samvinnu við deildarstjóra, dagskrárstjóra og sálfræðinga.
- Vinna að tómstundastarfi, starfsþjálfun og stuðningi í námi skjólstæðinga.
- Samskipti við foreldra og samstarfsaðila.
- Vinna eftir verklagsreglum og þeim gagnreyndu aðferðum sem unnið er eftir á heimilinu.
- Umönnun, stuðningur við athafnir daglegs lífs og tryggja öryggi skjólstæðinga.
- Almenn heimilisstörf.
- Önnur verkefni í samráði við yfirmenn.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla og/eða menntun sem að mati forstöðumanns nýtist í starfi.
- Áhugi og/eða reynsla af að vinna meðferðferðarvinnu með unglingum.
- Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
- Sveigjanleiki og þjónustulund.
- Gott líkamlegt atgervi og andlegt heilbrigði.
- Góð íslenskukunnátta í mæltu og rituðu máli.
- Enskukunnátta æskileg.
- Gild ökuréttindi.
Auglýsing birt15. september 2025
Umsóknarfrestur29. september 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Valkvætt
Staðsetning
Lækjarbakki í Gunnarsholti
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (8)

Atvinnulífstengill
VIRK Starfsendurhæfingarsjóður

Hópstjóri á meðferðarheimilinu Lækjarbakka
Barna- og fjölskyldustofa

Skemmtilegt hlutastarf í þjónustukjarna
Mosfellsbær

Atferlisfræðingur/ráðgjafi
Ráðgjafar- og greiningarstöð

Búsetuúrræði
Skjólstaðir ehf.

Neyðarverðir
Neyðarlínan

Stuðningsaðili á Velferðarsviði
Kópavogsbær

Ráðgjafar/ stuðningsfulltrúar í útkallsteymi yfirsetu
Landspítali