

Ráðgjafar í tæknilegri upplýsingaöryggisstjórnun
Syndis leitar að tæknilegum ráðgjöfum í upplýsingaöryggi sem vilja vinna náið með viðskiptavinum að því að styrkja tæknilegt öryggi upplýsingakerfa, greina veikleika og bregðast við netöryggisatvikum í síbreytilegu ógnarumhverfi.
Í starfinu felst tæknileg ráðgjöf, þar sem ráðgjafinn greinir m.a. áhættur og veikleika, bætir stillingar og uppsetningar á umhverfum viðskiptavina, bregst við öryggisatvikum og rannsakar þau. Allt gert með það að markmiði að auka seiglu og öryggi kerfa viðskiptavina.
Við leitum að einstaklingi með sterka tækniþekkingu og hæfni til að miðla flóknum tæknilegum atriðum á skýran og faglegan hátt.
Við leitum að einstaklingi sem:
- Hefur reynslu af tæknilegri útfærslu öryggismála eða kerfisstjórnun
- Hefur viðeigandi menntun
- Reynsla af atvikameðhöndlun er kostur
- Hefur mikla þekkingu á Microsoft umhverfum (AD og EntraID)
- Hefur framúrskarandi samskiptahæfni og lausnamiðað hugsun
- Sýnir frumkvæði, vandvirkni og aga í vinnubrögðum
- Hefur mikinn áhuga á tækni og netöryggismálum
- Hefur gott vald á íslensku og ensku, bæði töluðu og rituðu máli
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Tæknileg upplýsingaöryggisráðgjöf fyrir viðskiptavini Syndis
- Bæta öryggi upplýsingakerfa og umhverfa viðskiptavina, t.d. með herðingu stillinga eða innleiðingu lausna
- Atvikastjórnun og rannsóknir á netöryggisatvikum hjá fyrirtækjum
- Tæknilegar úttektir, m.a. vegna NIS2, ISO 27001, og DORA
- Tilfallandi ráðgjöf og verkefnastýring
- Byggja upp og viðhalda faglegu sambandi við viðskiptavini
Fríðindi í starfi:
- Sveigjanleiki í starfi
- Fyrsta flokks mötuneyti
- Fríðindi tengd fæðingarorlofi
- Öflugt félagslíf
- Líkamsræktaraðstaða
- Íþróttastyrkur, samgöngustyrkur o.fl. fríðindi
Um Syndis
Syndis er leiðandi fyrirtæki í upplýsingaöryggi sem sérhæfir sig í öryggislausnum og ráðgjöf á alþjóðamarkað. Fyrirtækið er í örum vexti og starfa þar nú yfir 70 öryggissérfræðingar bæði hér á landi og erlendis. Höfuðstöðvar Syndis eru í Borgartúni 37 í Reykjavík en við erum einnig með starfsstöðvar í Svíþjóð (Stokkhólmi) og Póllandi.
Við bjóðum upp á inngildandi vinnustað, fyrsta flokks félagslíf, samkeppnishæf kjör og mjög góð starfsmannafríðindi. Vinnuumhverfið er fjölskylduvænt, vinnutíminn sveigjanlegur, heimavinna eftir hentisemi og góður stuðningur við þróun í starfi og endurmenntun.
Erum við að leita að þér?
Ef þér finnst hlutverkið sem um ræðir spennandi, sendu okkur endilega umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi. Sótt er um starfið á starfavef Syndis. Umsóknarfrestur er til 19. janúar.
Allar umsóknir og fyrirspurnir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og þeim svarað. Upplýsingar um starfið veita Guðrún Valdís Jónsdóttir, forstöðumaður ráðgjafasviðs ([email protected]) og Eva Demireva, mannauðsstjóri ([email protected]).
Íslenska
Enska










