
Píanókennari óskast
Tónmenntaskóli Reykjavíkur auglýsir eftir píanókennara. Um a.m.k. 60% framtíðarstöðu er að ræða.Tónmenntaskóli Reykjavíkur er einn af elstu tónlistarskólum landsins, stofnaður 1952, og er til húsa við Lindargötu. Leitað er eftir jákvæðum og sjálfstæðum einstaklingi sem passar inn í hressan kennarahóp skólans.Menntunar- og hæfniskröfur:Tónlistarkennaramenntun nauðsynleg og reynsla af tónlistarkennslu æskileg. Ekki er verra ef viðkomandi hefur reynslu af popp - og jazzpíanóleik.Viðkomandi þarf að geta hafið störf í ágúst 2026.Kennt er samkvæmt Aðalnámskrá tónlistarskóla.Í umsókn þurfu að koma fram persónulegar upplýsingar um menntun, kennsluferil og meðmælendur.Umsóknarfrestur er til 12. maí.
Tónlistarkennaramenntun nauðsynleg og reynsla af tónlistarkennslu æskileg. Ekki er verra ef viðkomandi hefur reynslu af popp - og jazzpíanóleik.
Íslenska





