Skólahljómsveit Kópavogs
Skólahljómsveit Kópavogs
Skólahljómsveit Kópavogs

Hornkennari í hlutastarfi

Skólahljómsveit Kópavogs leitar að hljóðfærakennara. Um er að ræða kennslu á horn í allt að 50% starfshlutfalli næsta vetur. Möguleiki á framtíðarstarfi.

Skólahljómsveit Kópavogs var stofnuð árið 1966. Að jafnaði eru um 175 hljóðfæraleikarar í Skólahljómsveit Kópavogs og er þeim skipt í þrjár sveitir eftir aldri og getu. Hljómsveitirnar gegna veigamiklu hlutverki í bæjarsamfélaginu og koma þær oft fram á hátíðum og viðburðum í bænum auk þess sem þrennir stórir tónleikar eru haldnir árlega.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Kennsla á horn samkvæmt aðalnámskrá tónlistarskólanna
  • Undirbúningur kennsluáætlana, stundatöflugerð og umsjón með nemendahópnum og samskipti við forráðafólk
  • Skipulagning og þátttaka í tónleikum og tónfundum og þátttaka í kennarafundum.
  • Skráning og utanumhald nemenda í nemendaumsjónarkerfi 
  • Fagleg þróun og þátttaka í starfsdögum og endurmenntun
  • Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni og samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Tónlistarnám sem nýtist í starfi
  • Haldgóð þekking á kennslufræði blásturshljóðfæra
  • Forystuhæfileikar, samskiptahæfni og góðir skipulagshæfileikar
  • Æskilegt er að viðkomandi hafi framhaldsmenntun á sviði kennslufræði
  • Góð íslenskukunnátta æskileg
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins. 

Auglýsing birt22. apríl 2026
Umsóknarfrestur6. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Álfhólsvegur 102, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar