NPA miðstöðin
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin

Óska eftir áreiðanlegu NPA aðstoðarfólki í tímabundið starf

Ég er 63 ára maður, búsettur í Kópavogi ásamt eiginkonu minni og dóttur. Ég er með langt genginn MND sjúkdóm (hreyfitaugahrörnun) og leita að áreiðanlegum og traustum einstaklingi, 25 ára og eldri, til þess að aðstoða mig á þessum tíma. Reynsla af störfum með fólki með MND eða aðra sjúkdóma er kostur.

Um starfið

Sjúkdómur minn er langt genginn og er því um tímabundið, sem og krefjandi starf að ræða.

Ég þarf nú umfangsmikla aðstoð við daglegt líf. Aðstæður geta verið krefjandi og ákveðin verkefni krefjast tvímönnunar. Starfið getur því falið í sér líkamlega- og andlega krefjandi verkefni og mikilvægt er að viðkomandi geti sinnt þeim verkefnum sem starfið felur í sér.

Ég leita sérstaklega að einstaklingi sem er sveigjanlegur og getur tekið vaktir með stuttum fyrirvara, bæði á daginn og á kvöldin. Einnig er möguleiki á föstum vöktum og/eða aukavöktum eftir samkomulagi.

Ég er opinn fyrir mismunandi fyrirkomulagi fyrir rétta manneskju, en legg mikla áherslu á áreiðanleika, sveigjanleika og gott samstarf.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Laun eru greidd samkvæmt gildandi kjarasamningi NPA miðstöðvarinnar og Eflingar. Nánari upplýsingar um laun og kjör má finna á:
https://npa.is/adstodarfolk/kjarasamningar

Hæfniskröfur

    1. Bílpróf, reykleysi og hrein sakaskrá eru skilyrði.

    2. Góð íslenskukunnátta er skilyrði.

    3. Sveigjanleiki og geta til að taka vaktir með stuttum fyrirvara.

    4. Geta til að sinna líkamlega krefjandi verkefnum sem starfið getur falið í sér.

    5. Áreiðanleiki, stundvísi, aðlögunarhæfni og gott viðmót.

    6. Reynsla af umönnun, persónulegri aðstoð eða sambærilegum störfum er mikill kostur.

Auglýsing birt14. október 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Urðarhvarf 8, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar