

OK leitar að leiðtoga yfir NOC vaktborði
OK leitar að áhugasömum, drífandi einstakling með kerfisstjórareynslu til að takast á við nýja stöðu sem NOC leiðtogi með okkar frábæra vöktunar-teymi og koma að framþróun á þjónustunni, kerfum, verklagi og öðru. Um er að ræða fullt starf á dagtíma með mætingu á starfsstöð á höfuðborgarsvæðinu. Vinnutími er að jafnaði frá kl 8:00-16:00 alla virka daga.
Hjá OK starfar fjölbreyttur hópur fólks og hvetjum við öll sem uppfylla hæfnikröfur og hafa áhuga á starfinu til að sækja um, óháð kyni.
Hvað er NOC ?
NOC (Network Operations Center) er okkar 24x7 vöktunarþjónusta.
Vöktunarþjónusta felur í sér vöktun á tölvukerfum allan sólarhringinn, alla daga ársins og býr að öflugum hópi sérfræðinga, vöktunarkerfum og ferlum sem tryggja þann uppitíma sem krafist er.
-
Dagvaktir á NOC (08:00-16:00)
-
Skipulag og umsjón með vaktaplani teymisins
-
Dagleg umsýsla NOC teymis og samskipti við lykilaðila innan OK
-
Umsýsla kerfa, útstöðva og annarra jaðartækja
-
Úrvinnsla verkbeiðna
-
Þjónusta við notendur
-
Vinna með forstöðumanni í framþróun á þjónustunni, val á kerfum, úrbótaverkefni og nýjungar
-
Önnur tilfallandi verkefni
- Nám í kerfisstjórnun eða önnur menntun sem nýtist í starfi er kostur
- Að lágmarki 1 árs reynsla af kerfisstjórn er skilyrði
- Hreint sakavottorð er skilyrði
- Öguð og sjálfstæð vinnubrögð
- Geta til að vinna í hóp og vera hluti af teymi
- Góð færni í íslensku, bæði skrifuðu og töluðu máli
- Góð færni í ensku, bæði skrifuðu og töluðu máli
- Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri
Íslenska
Enska









