

Náms-og starfsráðgjafi óskast í Hofsstaðaskóla
Staða náms- og starfsráðgjafa í Hofsstaðaskóla er laus frá hausti 2025 til vors 2026. Í skólanum eru um 450 nemendur í 1. - 7. bekk og þar starfa um 90 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu.
Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf sem er í stöðugri þróun. Kennsluhættir eru fjölbreyttir og vellíðan nemenda í fyrirrúmi í anda menntastefnu Garðabæjar. Læsi skipar stóran sess og þjónusta við nemendur með sérþarfir er öflug. Nánari upplýsingar um skólann má finna á vefsíðunni www.hofsstadaskoli.is
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að standa vörð um nám og velferð nemenda
- Að veita ráðgjöf varðandi nám, námstækni og námsvenjur
- Að vera trúnaðarmaður og talsmaður nemenda
- Að sitja í nemendaverndarráði og vinna með öðrum fagaðilum
- Að stýra samskiptateymi skólans og vinna með samskiptamál
- Að taka þátt í forvarnarverkefnum skólans
- Að veita ráðgjöf og fræðslu um náms- og starfsval
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsréttindi sem náms- og starfsráðgjafi
- Reynsla af námsráðgjöf og starfi með börnum er æskileg
- Áhugi á og þekking á vinnu með félagsfærni nemenda
- Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
- Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. evrópska tungumálarammanum
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Ábyrgðarkennd, sveigjanleiki og skipulagshæfileikar
- Faglegur metnaður
Auglýsing birt14. maí 2025
Umsóknarfrestur2. júní 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðSkipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Skólastjóri í Patreksskóla
Vesturbyggð

Skólastjóri í Tálknafjarðarskóla
Vesturbyggð

Deildarstjóri í Hofsstaðaskóla
Hofsstaðaskóli Garðabæ

Fagstjóri í hreyfingu
Leikskólinn Sumarhús

Íþróttakennari óskast
Helgafellsskóli

Ráðgjafi á Suðurlandi
Vinnumálastofnun

Umsjónarkennari á miðstigi
Smáraskóli

Stjórnunarstöður í Auðarskóla skólaárið 2025-2026
Auðarskóli

Umsjónarkennari í 1. - 3. bekk í Álfhólsskóla
Álfhólsskóli

Umsjónarkennari
Álftamýrarskóli

Forfallakennari í Álfhólsskóla
Álfhólsskóli

Heimilisfræðikennari á miðstigi í Álfhólsskóla 2025-2026
Álfhólsskóli