

Selfoss - Starfsmaður tæknideildar, fullt starf
Mjólkursamsalan (MS) á Selfossi leitar að öflugum og lausnamiðuðum starfsmanni til starfa í tækniteymi fyrirtækisins. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem unnið er með hátæknivæddan framleiðslubúnað.
Hjá MS starfar samhentur hópur fagfólks sem leggur áherslu á öryggi, gæði, nýsköpun og stöðugar umbætur. Við leggjum metnað í gott vinnuumhverfi, þekkingarmiðlun og að starfsfólk fái tækifæri til að þróast í starfi.
• Viðgerðir og viðhald á vélum og tækjabúnaði afurðarstöðvarinnar
• Viðhald og þjónusta á mjólkurpökkunarvélum frá Tetra Pak
• Viðhald og þjónusta á dósapökkunarvélum frá Trepko
• Viðhald og þjónusta á örsíun (Ultra, NF og RO síun)
• Eftirlit og viðhald á skilvindum og öðrum framleiðslubúnaði
• Viðhald og rekstur stoðkerfa, m.a.:
o Loftpressur
o Kælipressur
o Gufuframleiðsla
o Annar tæknibúnaður framleiðslunnar
• Menntun sem vélfræðingur, (vélstjóri), vélvirki eða sambærileg menntun
• Reynsla af viðhaldi og bilanagreiningu vélbúnaðar er æskileg
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
• Góð tölvukunnátta er kostur
• Góð samskiptahæfni og hæfni til að starfa í teymi
• Góð íslenskukunnátta er skilyrði
• Góð enskukunnátta er æskileg
Enska
Íslenska










