
MAX1 | VÉLALAND
MAX1 I VÉLALAND veitir dekkja- og verkstæðisþjónustu fyrir flest allar tegundir bíla og býður upp á margvíslegar rafrænar lausnir við pantanir á þjónustu. MAX1 dregur nafn sitt af því markmiði okkar að klára hvern verkþátt á innan við klukkustund eftir að við hefjumst handa.
Áhersla er ávallt lögð á að þjónusta viðskiptavini okkar á framúrskarandi hátt á öllum sviðum og eru öll verkstæði MAX1 I VÉLALAND aðilar að Bílgreinasambandinu.
Samstarfsaðilar okkar eru fjölmargir, dekkin koma frá finnska dekkjaframleiðandanum Nokian, smurolíurnar frá Olís, rafgeymarnir frá Exide, þurrkublöðin frá Trico og varahlutir koma ýmist beint að utan, frá bílaumboðum eða ýmsum birgjum innanlands.
Hjá MAX1 I VÉLALAND starfa vel þjálfaðir og reynslumiklir starfsmenn á starfsstöðvum sem geta veitt bílaþjónustu um allt höfuðborgarsvæðið.

Bifvélavirki fyrir Max1/Vélaland
Brimborg óskar eftir hæfileikaríkum og metnaðarfullum bifvélavirkja til starfa á verkstæði Max1/Vélalands að Dalshrauni 5 í Hafnarfirði. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf sem felur í sér bilanagreiningu og viðgerðir á Ford, Volvo, Polestar, Mazda, Citroën, Peugeot og Opel bílum.
Við leitum að einstaklingi sem?
- Er með sveinspróf og/eða meistarapróf í bifvélavirkjun eða mikla reynslu af viðgerðum
- Er skipulagður, samviskusamur og metnaðarfullur
- Nýtur sín í krefjandi og markmiðadrifnu umhverfi
- Hefur áhuga á að taka þátt í uppbyggingu og vexti vörumerkisins Max1/Vélaland á Íslandi.
Við bjóðum uppá
- Að vinna með nýjustu bíltækni í framúrskarandi vinnuaðstöðu.
- Lifandi og spennandi starf þar sem er unnið við nýjustu bíltækni með háþróuðum tækjabúnaði sem eykur skilvirkni og léttir störfin
- Skemmtilegt og fjölbreytt starf hjá metnaðarfullu fyrirtæki
- Öflugt starfsmannafélag með fjölbreyttu félagslífi og viðburðum
- Fjölskylduvænan vinnustað með styttri opnunartíma
Helstu verkefni og ábyrgð
- Bilanagreiningu og viðgerðir á Ford, Volvo, Polestar, Mazda, Citroën, Peugeot og Opel bílum
- Þátttaka í þjálfun og símenntun
Menntunar- og hæfniskröfur
- Réttindi í bifvélavirkjun eða sambærileg reynsla af bílaviðgerðum
- Frumkvæði, sjálfstæði og fagleg vinnubrögð
- Snyrtimennska, stundvísi og áreiðanleiki
- Gilt bílpróf
Fríðindi í starfi
- Fjölbreytt fríðindi samkvæmt mannauðsstefnu Brimborgar
- Niðurgreiddur hádegismatur
- Afsláttur af vörum og þjónustu fyrirtækisins
- Árlegur íþrótta- og heilsustyrkur
- Þú færð frí á afmælisdaginn þinn, enda stórmerkilegur dagur
Auglýsing birt5. febrúar 2026
Umsóknarfrestur22. febrúar 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Dalshraun 5, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
BifvélavirkjunBílvélaviðgerðirFrumkvæðiÖkuréttindiSamviskusemiStundvísiVélvirkjunÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Bifvélavirki fyrir Saga car rental í Keflavík
Saga Car Rental

Kennari í vélstjórnargreinum á A- og B-stigi
Menntaskólinn á Ísafirði

Rafvirkjar og vélvirkjar
Norðurál

Bifvélavirki
D&C ehf.

Leggðu línuna til Rarik í sumar! Sumarstörf í framkvæmdaflokkum Rarik víða um land
Rarik ohf.

Viltu vinna við veitukerfi okkar á Vesturlandi?
Veitur

Standsetning nýrra bíla
BL ehf.

Car Painter & Bodywork Technician
Dekkjalíf ehf.

Óskum eftir þjónustufulltrúa í frábært teymi
Bílson

Starfsmaður í bifreiðaskoðun á Akureyri
Frumherji hf

Bifvélavirki / Mechanic
Lotus Car Rental ehf.

Starfsmaður á verkstæði
Airport Associates