Skeljungur ehf
Skeljungur ehf
Skeljungur ehf

Meiraprófsbílstjóri - sumarstarf

Skeljungur óskar eftir að ráða meiraprófsbílstjóra til starfa til að sinna afgreiðslu, dælingu og dreifingu eldsneytis á höfuðborgarsvæðinu í sumar. Ásamt öðrum tilfallandi verkefnum sem falla undir starfssvið Dreifingar á höfuðborgarsvæðinu.

Skeljungur sér um dreifingu, innkaup og heildsölu á eldsneyti, smurolíu, hreinsi- og efnavörum, áburði sem og öðrum vörum og þjónustuþáttum til fyrirtækja og bænda. Þjónusta og sala til stórnotenda, til útgerða, í flug og verktöku er einnig hluti af starfseminni.

Hjá Skeljungi starfar fjölbreyttur hópur fólks á öllum aldri. Mannauðurinn er mikilvægasta auðlind Skeljungs. Við berum hag starfsmann fyrir brjósti og viljum vera í fremstu röð hvað varðar réttindi þeirra, öryggi og starfsumhverfi. Í okkar daglega starfi vinnum við eftir kjarnagildum okkar, við erum jákvæð, við erum tilbúin í breytingar og við erum metnaðarfull.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meirapróf C og CE er skilyrði
  • ADR réttindi kostur
  • Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
  • Reynsla af akstri kostur
  • Góð íslenskukunnátta æskileg
  • Samviskusemi, stundvísi og reglusemi
Auglýsing birt18. febrúar 2026
Umsóknarfrestur9. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Eyjaslóð 7
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar