
Terra hf.
Terra er líflegur og fjölbreyttur vinnustaður. Hjá félaginu starfa um 260 einstaklingar á starfsstöðvum á nokkrum stöðum á landinu. Alla daga vinnum við af dugnaði og eljusemi að því að gera góða hluti fyrir umhverfið.
Við veitum fjölbreytta þjónustu á sviði umhverfismála, einkum á sviði úrgangsstjórnunar og endurvinnslu. Frá 1984 hefur Terra lagt áherslu á að þjóna fyrirtækjum, sveitarfélögum og einstaklingum á hagkvæman og umhverfisvænan hátt þar sem tekið er fullt tillit til aðstæðna á hverjum stað og mismunandi þarfa viðskiptavina. Lögð er áhersla á að koma öllum þeim efnum sem falla til í viðeigandi farveg og aftur inn í hringrásarhagkerfið.
Við leggjum mikið upp úr fjölskylduvænu vinnuumhverfi, sterkri liðsheild og jákvæðum og góðum starfsanda. Við erum með öflugt starfsmannafélag sem heldur fjölbreytta viðburði yfir allt árið.

Meiraprófsbílstjóri - Akureyri
Við leitum að öflugum og áreiðanlegum einstaklingi með meiraprófsréttindi til starfa í akstursdeildinni okkar á Akureyri. Starfið krefst fagmennsku, jákvæðs viðhorfs og góðs samstarfs. Hjá okkur skiptir hvert hlutverk máli og við leggjum metnað í að byggja upp sterkt og samheldið teymi.
Hlutverk meiraprófsbílstjóra er að þjónusta viðskiptavini okkar við losun á ílátum frá fyrirtækjum, sveitarfélögum og einstaklingum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Akstur, lestun og losun
- Samskipti og þjónusta við viðskiptavini
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Meirapróf C
- Meirapróf CE er kostur
- Vinnuvéla- og kranaréttindi er kostur
- Jákvæðni og áreiðanleiki
- Þjónustulund og samskiptahæfni
- Íslensku- og/eða enskukunnátta
Auglýsing birt16. febrúar 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Hlíðarfjallsvegur
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniMeirapróf CSamviskusemiÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Bílstjórar í sumarstörf
Olíudreifing - Dreifing

Sumarstörf hjá Samskipum á Akureyri
Samskip

Steypubílstjóri í Helguvík
Steypustöðin

Bílstjóri/Shuttle service
Enterprise Rent-A-Car á Íslandi

Bílstjóri óskast
Fiska.is Asian supermarket

Meiraprófsbílstjóri á Akureyri
Samskip

Meiraprófsbílstjóri á Egilsstöðum
Samskip

Meiraprófsbílstjórar
EAK ehf.

Whisper & Service Agent
Your Friend In Reykjavik

Bílstjóri á hálendisrútuna - sumarstarf
Icelandia

Bílstjóri
Kjarnavörur hf

Vestmannaeyjar - Bílstjóri afleysing
Pósturinn