

Bílstjórar í sumarstörf
Olíudreifing leitar að öflugum og metnaðarfullum bílstjórum með meirapróf í sumarafleysingar hjá fyrirtækinu fyrir sumarið 2026. Tímabilið sem um ræðir er frá apríl/maí og fram í ágúst/september.
Olíudreifing greiðir ADR námskeið og laun á námskeiðstíma fyrir þá bílstjóra sem ekki hafa ADR réttindi.
Um er að ræða fjölbreytt störf við olíudreifingu, ýmist í dag- eða vaktavinnu.
Helstu verkefni:
- Dreifing á eldsneyti beint á vinnuvélar, tanka og skip
- Unnið er samkvæmt ISO vottuðum verkferlum
- Umhirða bifreiða
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Meirapróf
- Hreint sakavottorð
- Snyrtimennska og stundvísi
- Rík öryggisvitund, þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Íslensku- og/eða enskukunnátta
Við bjóðum þér:
- Spennandi verkefni
- Niðurgreiddan hádegismat
- Vinnufatnað
Við hlökkum til að fá umsóknina þína
Tekið er á móti umsóknum ásamt afriti af meiraprófsskírteini til og með 30. apríl 2026. Nánari upplýsingar veitir Harpa Hrund Jóhannsdóttir ([email protected]).
Við hvetjum öll kyn til að sækja um.
Um Olíudreifingu:
Olíudreifing er þekkingar- og þjónustufyrirtæki á sviði orkumála. Hlutverk Olíudreifingar er að dreifa og halda utan um birgðir á fljótandi orkugjöfum. Félagið er nú þegar þátttakandi í orkuskiptum og er að undirbúa meðhöndlun rafeldsneytis.
Fyrirtækið rekur bifreiða-, járnsmíða-, dælu- og rafmagnsverkstæði. Einnig er rekið þjónustuverkstæði sem sinnir viðhaldi á raf- og vélbúnaði. Starfsfólk félagsins er um 130 talsins og starfar á starfsstöðvum víðsvegar um landið. Unnið er samkvæmt gæðavottuðum vinnuferlum.
Nánari upplýsingar um Olíudreifingu ehf. má finna á www.odr.is.
Enska
Íslenska










