KPMG Law ehf.
KPMG Law ehf.
KPMG Law ehf.

Lögfræðingar hjá KPMG Law

Vilt þú takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni í metnaðarfullu umhverfi?

Vegna mikilla anna og áframhaldandi vaxtar leitum við að metnaðarfullum og lausnamiðuðum lögfræðingum til að styrkja fjölbreyttan hóp KPMG Law.

Við leitum bæði að lögfræðingum sem eru að stíga sín fyrstu skref á starfsferlinum og reynslumeiri einstaklingum sem vilja nýta þekkingu sína og reynslu í nýju umhverfi. Hjá KPMG Law færð þú tækifæri til að vinna að fjölbreyttum lögfræðilegum úrlausnarefnum fyrir íslensk og alþjóðleg fyrirtæki. Við störfum í nánu samstarfi við sérfæðinga KPMG á sviði fjármála, rekstrar og endurskoðunar sem gerir okkur kleift að bjóða viðskiptavinum okkar heildstæða og fjölbreytta ráðgjöf.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Almenn lögfræðiráðgjöf fyrir viðskiptavini KPMG.
  • Þátttaka í framkvæmd áreiðanleikakannana.
  • Samninga- og skjalagerð um framkvæmd og frágang viðskipta.
  • Ráðgjöf og þjónusta tengd kaupum, sölum og fjármögnun fyrirtækja.


Hæfniskröfur:

  • Hafa lokið eða eru að ljúka meistaragráðu í lögfræði.
  • Reynsla af viðskipta-, fjármála- og/eða fyrirtækjalögfræði er kostur.
  • Brennandi áhugi á rekstri og fjármálum fyrirtækja.
  • Eru metnaðarfullir, lausnamiðaðir og tilbúnir að takast á við fjölbreytt verkefni.
  • Eiga auðvelt með að vinna sjálfstætt og í samstarfi við aðra.
  • Hafa góða hæfni til að setja fram mál í ræðu og riti, bæði á íslensku og ensku.
  • Sýna frumkvæði, fagmennsku og lipurð í samskiptum.
  • Hafa ríka þjónustulund og leggja áherslu á vönduð vinnubrögð.
  • Hafa áhuga á stafrænni þróun og tækifærum sem felast í nýrri tækni.


Í samræmi við markmið okkar í jafnréttismálum hvetjum við allt áhugasamt fólk til að sækja um óháð kyni.


KPMG Law ehf.

KPMG Law er sérhæfð lögmannsstofa í alþjóðlegu samstarfi KPMG og ein af leiðandi stofunum á sviði fyrirtækjalögfræði á Íslandi. Við höfum vaxið hratt á undanförnum árum og í dag starfa hjá okkur á fjórða tug lögmanna, lögfræðinga og sérfræðinga. Við leggjum ríka áherslu á að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu og bjóðum upp á frábær tækifæri fyrir metnaðarfullt fólk til starfsþróunar í sveigjanlegu og fjölbreyttu vinnuumhverfi. Við störfum náið með öðrum sérfræðingum KPMG innanlands sem og erlendis sem gerir okkur kleift að veita heildstæða þjónustu á breiðum grunni, hvort sem er á sviðum lögfræði, fjármála eða rekstrar. Sérfræðingar okkar þekkja lögin og skilja áhrif þeirra á rekstur.


Nokkur dæmi um kosti þess að vinna hjá KPMG Law:

  • Fjölbreytt og krefjandi verkefni með raunveruleg áhrif.
  • Öflug tækifæri til starfsþróunar og samstarfs við sérfræðinga KPMG hér á landi og erlendis.
  • Sveigjanlegt vinnuumhverfi og möguleiki á að vinna frá mismunandi starfsstöðvum og að heiman þegar við á.
  • Heilsueflandi vinnustaður með líkamsræktarstyrk, samgöngustyrk og KPMGfit æfingum.
  • Fyrsta flokks mötuneyti í Borgartúni með fjölbreyttu og hollu fæði.
  • Stuðningur við andlega heilsu í gegnum Kara velferðartorg.
  • Stuðningsúrræði og styrkur fyrir verðandi og nýbakaða foreldra.
  • Einn launaður dagur á ári til sjálfboðavinnu.
  • Og margt fleira.


Umsóknarfrestur er til og með 30. nóvember 2026

Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út á heimasíðu KPMG (sækja um hér til hliðar). Nánari upplýsingar veitir Hildur Steinþórsdóttir, sérfræðingur í mannauðsmálum, á [email protected].

Auglýsing birt18. nóvember 2026
Umsóknarfrestur30. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 27, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar