Landsnet hf.
Landsnet hf.
Landsnet hf.

Lögfræðingur og regluvörður raforkumarkaða

Viltu taka þátt í að móta nýtt og mikilvægt hlutverk á íslenskum raforkumarkaði?

Landsnet leitar að lausnamiðuðum lögfræðingi til að byggja upp og sinna regluvörslu vegna REMIT og annarra reglna um heilleika og gagnsæi raforkumarkaðarins. Samhliða regluvörsluhlutverkinu mun viðkomandi veita stjórnendum og starfsfólki fjölbreytta lögfræðilega ráðgjöf.

Um er að ræða nýtt starf sem gefur viðkomandi tækifæri til að hafa áhrif á mótun þess og þróun. Í upphafi verður megináhersla lögð á innleiðingu REMIT, lögfræðilega ráðgjöf, eftirlit með reglufylgni og fræðslu.

Helstu verkefni

  • Uppbygging og framkvæmd regluvörslu vegna REMIT.
  • Lausnamiðuð lögfræðileg ráðgjöf til stjórnenda og starfsfólks.
  • Eftirlit með reglufylgni og eftirfylgni vegna vafatilvika og úrbóta.
  • Gerð og yfirferð samninga.
  • Ritun lögfræðilegra umsagna, erinda og minnisblaða.
  • Fræðsla, samskipti við eftirlitsaðila og önnur almenn lögfræðiþjónusta.

Hæfni og reynsla

  • Embættis- eða meistarapróf í lögfræði.
  • Reynsla af lögfræðilegri ráðgjöf er æskileg.
  • Lausnamiðuð nálgun og góð fagleg dómgreind.
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
  • Hæfni til að greina flókið regluverk og miðla efni þess á skýran og hagnýtan hátt.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Mjög góð færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.

Reynsla af samningagerð og ritun lögfræðilegra umsagna er kostur. Reynsla af regluvörslu, orkurétti, raforkumörkuðum, fjármálamarkaðsrétti eða innra eftirliti er einnig kostur.

Um starfið

Starfið heyrir undir svið lögfræði og stjórnkerfa. Í starfi sínu sem regluvörður er viðkomandi faglega sjálfstæður og hefur beina upplýsinga- og boðleið til forstjóra og stjórnar í málum sem falla undir regluvörsluhlutverkið.

Hjá Landsneti færðu tækifæri til að móta nýtt hlutverk, vinna með fjölbreyttum hópi sérfræðinga og taka þátt í samfélagslega mikilvægum verkefnum í starfsumhverfi sem einkennist af ábyrgð, þróun og góðu samstarfi.

Umsóknarfrestur er til og með 22. nóvember.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir áhuga sínum á starfinu og hvernig reynsla umsækjenda og hæfni nýtist við framkvæmd þess.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sara Lind Guðbergsdóttir (Forstöðumaður lögfræði og stjórnkerfa) á [email protected].

Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Landsnet hvetur áhugasama einstaklinga, óháð kyni og uppruna, til að sækja um starfið.

Auglýsing birt11. nóvember 2026
Umsóknarfrestur22. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar