

Lögfræðingur á sviði skatta-og lögfræðiráðgjafar
Deloitte Legal er framsækin og alþjóðleg lögmannsstofa sem þjónustar fjölbreyttan hóp fyrirtækja í margvíslegum atvinnugreinum á öllum helstu sviðum fyrirtækjalögfræði. Deloitte Legal er jafnframt samstarfsaðili Deloitte á heimsvísu sem samanstendur af 457.000 sérfræðingum og er leiðandi þjónustuveitandi á sviði endurskoðunar og reikningsskila, upplýsingatækniráðgjafar, fjármálaráðgjafar, áhætturáðgjafar og tengdrar þjónustu.
Deloitte Legal leitar að áhugasömum og metnaðarfullum lögfræðingi í öflugt teymi félagsins, sem samanstendur af hópi lögmanna, lögfræðinga og annarra sérfræðinga. Hjá Deloitte á heimsvísu starfa að auki yfir 2.500 lögfræðingar, sem saman stefna að því að veita framúrskarandi þjónustu.
-
Lögfræðiráðgjöf og skjalagerð
-
Ráðgjöf við stór sem smá fyrirtæki
-
Samvinna með ýmsum ráðgjafateymum, hér heima og erlendis.
-
Embættis-eða meistarapróf í lögfræði
-
Reynsla af lögfræðistörfum á sviði skattaréttar sem og samninga-og félagarétti er kostur
-
Reynsla og skilningur ársreikninga er ákjósanlegur
-
Framúrskarandi samskipta-og samstarfshæfni
-
Sjálfstæði í vinnubrögðum
-
Frumkvæði og lausnamiðuð hugsun
-
Mjög góð íslensku-og enskukunnátta í ræðu og riti er skilyrði
Starfsþróun þín
-
Við upphaf starfs færðu leiðbeinanda sem kemur þér inn í starfið („Buddy-kerfi“)
-
Þú færð þjálfun og stuðning frá reyndum sérfræðingum í teyminu þínu
-
Þú verður með reyndan Coach sem aðstoðar þig við að þróa þig áfram í starfi
-
Þú lærir mikið á þeim fjölbreyttu verkefnum sem þú tekur að þér hjá viðskiptavinum í ólíkum geirum.
-
Við styðjum við vöxt þinn með símenntunartækifærum
Að auki bjóðum við upp á:
-
Frábært mötuneyti með niðurgreiddum morgunmat og hádegismat.
-
Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf
-
Styrki til foreldra
-
Fyrirmyndar aðbúnað starfsfólks
-
Sjálfboðastarf til áhrifa – launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum












