
Framtíðarfólk ehf.
Leikskólinn Áshamar er nýr leikskóli sem hefur starfsemi 1. apríl 2025. Framtíðarfólk ehf. leitar að metnaðarfullum og öflugum leikskólaráðgjafa á yngsta stig til að starfa með stjórnendum og starfsfólki að þróunarverkefnum og uppbyggingu faglegra málefna í uppeldis- og menntunarstarfi og skólaþjónustu við börn í Áshömrum.
Leikskólakennari óskast
Framtíðarfólk ehf. rekur leikskólann Áshamar, nýjan og framsækinn leikskóla sem hóf starfsemi 1. apríl 2025. Áherslur okkar eru skýrar: hæglæti í leik og námi, útikennsla og vellíðan barna og starfsfólks. Við trúum því að börn þurfi tíma, tækifæri og rými til að læra í gegnum leik og að dýrmætustu augnablikin í leikskólastarfi verði til þegar við hægjum á okkur og njótum samverunnar í náttúrunni eða í skapandi verkefnum innan dyra.
Nánari upplýsingar um Framtíðarfólk má finna á framtidarfolk.is.
Við leitum að leikskólakennara sem deilir okkar sýn og brennur fyrir því að skapa nærandi og örvandi umhverfi fyrir börn.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipuleggja og leiða daglegt uppeldis- og kennslustarf í samræmi við námskrá leikskóla og stefnu Framtíðarfólks
- Stuðla að hæglæti og yfirveguðu vinnulagi í leik og námi barna
- Skipuleggja og taka þátt í útikennslu og útiveru með börnum
- Veita börnum stuðning við félags- og tilfinningaþroska, málþroska og leik
- Vinna náið með samstarfsfólki að þróun faglegs starfs, nýsköpun og gæðum skólastarfs
- Halda utan um dagbókarskráningu, foreldrasamskipti og önnur samskipti sem tengjast starfinu
- Tryggja öryggi og vellíðan barna á öllum stundum
- Taka þátt í endurmenntun og fræðslu eftir því sem við á
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kennaramenntun
- Menntun og/eða reynsla af faglegri þróun og stefnumótun í leikskólastarfi er kostur
- Jákvætt viðhorf, góð samskiptafærni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Áhugi á nýsköpun í leikskólastarfi og innleiðingu nýrra kennsluhátta
- Íslenskukunnátta á stigi C2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög leikskóla nr. 90/2008
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn
- Ferilskrá
- Stutt kynningarbréf
- Staðfest afrit af prófskírteinum
- Upplýsingar um umsagnaraðila
Auglýsing birt23. ágúst 2026
Umsóknarfrestur7. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Áshamar 9
Starfstegund
Hæfni
Kennsla
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Laus staða í Marbakka
Marbakki

Leikskólinn Lækur óskar eftir deildarstjóra/leikskólakennara
Lækur

Deildarstjóri óskast til starfa
Leikskólinn Blásalir

Leikskólastjóri, Leikskólinn Tröllaborg
Sveitarfélagið Skagafjörður

Starfsmaður í stuðning óskast við leikskólann Bjarkatún
Leikskólinn Bjarkatún Djúpavogi

Kennari - Leikskólinn Stekkjarás
Hafnarfjarðarbær

Stundakennari í forföll
Salaskóli

Leikskólakennari óskast fyrir næsta skólaár
Helgafellsskóli

Kennarar – Leikskólinn Hörðuvellir
Hafnarfjarðarbær

Barnagæsla og aðstoð við heimilisstörf
Vinnvinn

Aðstoðarleikskólastjóri - Leikskólinn Hvammur
Hafnarfjarðarbær

Leikskólakennari eða leiðbeinandi óskast í tímabundið starf í leikskólann Núp
Núpur