Salaskóli
Salaskóli
Salaskóli

Stundakennari í forföll

Salaskóli óskar eftir stundakennara í tilfallandi forföll. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Um er að ræða tilfallandi forfallakennslu.

Í skólanum eru góður starfsandi og notalegt starfsumhverfi. Kennarar vinna saman í teymisvinnu við skipulagningu og undirbúning námsins.

Skólaþróun er ríkur þáttur í starfinu og mikil áhersla lögð á fjölbreytta kennsluhætti. Rauður þráður í starfi skólans er að nemendur fái að njóta sín og að þeim líði vel í skólanum. Í Salaskóla eru tæplega 500 nemendur í 1.-10. bekk.

Starfið gæti t.d. hentað kennaranemum eða kennurum á eftirlaunum sem vilja vinna nokkra daga þegar færi gefst.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Kennaramenntun og kennsluréttindi eða háskólamenntun sem nýtist í starfi (ef ekki fást kennarar með leyfisbréf)
  • Kennslureynsla æskileg
  • Mjög góð samstarfshæfni og vilji til teymisvinnu með öðrum kennurum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Áhugi á farsæld og velferð nemenda
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Þolinmæði, umburðarlyndi og stundvísi
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Forfallakennsla, t.d. vegna tilfallandi styttri veikinda eða leyfa kennara
  • Samstarf við kennara, og/eða foreldra eins og við á, um nám og þroska nemenda
  • Vera tilbúin að fylgja stefnu skólans og kennsluáætlunum
Auglýsing birt20. ágúst 2026
Umsóknarfrestur31. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Versalir 5, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar