

Leikskólakennari / leiðbeinandi í Maríuborg
Ertu leikskólakennari, með háskólamenntun sem nýtist í starfi og/ eða með reynslu af að starfa með börnum? Komdu þá endilega að vinna með okkur í Maríuborg þar sem notaleg stemning, falleg samskipti og faglegt starf blómstrar alla daga.
Leikskólinn Maríuborg auglýsir eftir leikskólakennara í fullt starf. Leikskólinn er staðsettur í Maríubaug 3 í Grafarholti. Náttúrufegurðin umkringir leikskólann og skapar einstakt tækifæri fyrir börnin til náms. Útisvæðið okkar er því fullt af töfrum sem gaman er að upplifa. Skólinn er bjartur og fallegur og skiptist í fjórar deildir, þar af íþróttasal, tvær kubbastofur og listasmiðju, auk starfsmannarýmis og eldhúss.
Einkunnarorð okkar og megingildi eru LEIKUR-SAMSKIPTI-NÁMSGLEÐI og er það grunnurinn að öllu okkar starfi. Við leggjum áherslu á læsi, frjálsan leik og félagsfærni. Lubbi finnur málbein og Vináttuverkefni Barnaheilla eru einnig ómissandi þáttur í lífi og námi barnanna í Maríuborg en söngur og tónlist skipar einnig stóran sess í starfi okkar. Þá er einnig starfrækt læsisteymi við leikskólann sem heldur utan um gerð læsis- og málstefnu Maríuborgar, sem verið er að vinna að. Að okkar mati er mikilvægt að leikur barna og skapandi starf fái rými og að börn nái að blómstra út frá sínum styrkleikum í ró og næði. Í Maríuborg er því lögð áhersla á faglegt starf sem þróast í takt við nýjustu rannsóknir og reynslu í menntunarfræði ungra barna. Þá er unnið eftir Menntastefnu Reykjavíkur, Draumar geta ræst, sem og Aðalnámskrá leikskóla.
Helstu verkefni
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna skv. starfslýsingu leikskólakennara.
- Taka þátt í skipulagningu faglegs starfs í samstarfi við deildarstjóra.
- Sinna daglegum verkefnum deildarinnar í samstarfi við deildarstjóra og annað starfsfólk.
- Samskipti og samvinna við foreldra.
- Sinna öðrum verkefnum sem deildarstjóri og leikskólastjóri felur starfsmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara eða önnur háskólamenntun skilyrði.
- Jákvæðni og frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
- Hæfni og sveigjanleiki í samskiptum.
- Ábyrgð og áreiðanleiki.
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum er skilyrði.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
Fríðindi í starfi
- 36 stunda vinnuvika miðað við fullt starf
- Sund- og menningarkort
- Afsláttur af leikskólagjaldi fyrir barn í leikskóla í Reykjavík
- Samgöngusamningur
- Boðið er upp á heitan mat í hádeginu, morgunmat og síðdegishressingu.
Íslenska










