Leikskólinn Strandheimar
Leikskólinn Strandheimar
Leikskólinn Strandheimar

Leikskólakennari

Leikskólinn Strandheimar auglýsir eftir leikskólakennara í tímabundna stöðu til þriggja mánaða. Viðkomandi þyrfti að geta hafið störf sem fyrst.

Leitað er að leikskólakennara sem hefur áhuga á að starfa í leikskóla þar sem fram fer faglegt leikskólastarf með áherslu er á leik, samvinnu, traust og gleði. Í leikskólanum Strandheimum er virkt lærdómssamfélag og teymisvinna en ásamt því er leikskólinn einnig Heilsueflandi leikskóli og vinnur eftir hugmyndafræði Jákvæðs aga.

Leikskólakennari starfar samkvæmt stefnumörkun leikskólans sem tekur meðal annars mið af menntastefnu Sveitarfélagsins Árborgar, aðalnámskrá leikskóla, lögum og reglugerðum um leikskóla og öðrum lögum er við eiga.

Um er að ræða gefandi og skemmtilegt starf í góðu starfsumhverfi barna og kennara.

Leikskólinn er fjögurra deilda og eru eldri og yngri deild á sitthvorri starfsstöðinni. Leikskólinn starfar eftir aðalnámskrá leikskóla og lögum um leikskóla, auk þess að vera heilsueflandi leikskóli og vinnum við eftir hugmyndafræði jákvæðs aga.

Leiðarljós Strandheima eru Vellíðan - Sköpun - Virðing og eru þau leiðarvísir að þeim markmiðum sem við viljum að séu gegnum gangandi í leikskólastarfinu og samskiptum innan hans. Það er mikilvægt að stórum sem smáum líði vel, að virðing sé borin fyrir náunganum og að sköpunarkraftur einstaklingsins fái notið sín.

Það er ósk okkar að börnin:

- Kynnist leikgleði

- Öðlist færni í samskiptum

- Læri að meta hreyfingu og þá ánægju sem hreyfing veitir

- Fái frelsi til sköpunar í leik og starfi

Hlutverk kennarans er að vera góð fyrirmynd, grípa tækifærið og vera minnugur þess að leikurinn er námsleið leikskóla.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna.
  • Að fylgist vel með velferð leikskólabarna og hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar. 
  • Að taka þátt í teymisvinnu, foreldrasamstarfi og sinnir faglegum verkefnum sem deildarstjóri felur honum. 
  • Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra. 
  • Að taka þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra. 
  • Situr starfsmannafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varðar starfsemi leikskólans. 
  • Að efla og viðhalda fagþekkingu sinni með reglubundinni endur- og símenntun.  
  • Að sinna þeim verkefnum er varða uppeldi og menntun leikskólabarna sem yfirmaður felur honum. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf leikskólakennara.
  • Reynsla, hæfni og áhugi í starfi með börnum.  
  • Reynsla í leikskólastarfi æskileg.
  • Færni í mannlegum samskiptum.  
  • Jákvæðni, frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Færni til að tjá sig í ræðu og riti.  
  • Góð íslenskukunnátta æskileg.
Auglýsing birt16. janúar 2026
Umsóknarfrestur27. janúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Túngata 39, 820 Eyrarbakki
Blómsturvellir 1, 825 Stokkseyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar