

Leikskólakennari eða leiðbeinandi óskast í Núp
Okkur í Núpi vantar kennara eða leiðbeinanda í 100% starf
Leikskólinn Núpur er 5 deilda leikskóli sem staðsettur er í Núpalind 3.
Einkunnarorð Núps eru sjálfstæði og sköpun í samvinnu og gleði. Við leggjum áherslu á Fjölgreindir í leikskólastarfi og að hin siðferðislegu gildi samfélagsins endurspeglist í öllu leikskólastarfinu s.s. virðing fyrir einstaklingnum, samábyrgð, umhyggja, sáttfýsi og tjáningarfrelsi allra.
Fjölgreindir í leikskólastarfi hjálpa okkur að sjá hvernig hvert barn lærir best og hvað við getum gert til að auðvelda því að nýta allar greindir til náms. Í leikskólanum eru börn með mismunandi atgervi og frá ólíkum menningarheimum og leitast er við að hvert barn fái viðfangsefni við sitt hæfi.
Upplýsingar um leikskólann má finna á http://nupur.kopavogur.is/
Athygli er vakin á því í Kópavogi er boðið upp á 6 tíma gjaldfrjálsan leikskóla ásamt auknum sveigjanleika og takmörkunum í opnunartíma leikskóla í dymbilviku, milli jóla og nýárs og vetrarfríum. Hér má sjá meira um það Sex tíma gjaldfrjáls leikskóli og aukinn sveigjanleiki | Kópavogsbær (kopavogur.is)
Starfið er laust frá 8. ágúst eða eftir samkomulagi
- Vinna að uppeldi og menntun barna
- Vinnur í nánu samstarfi við forráðamenn barna
- Sinnir verkefnum er varða uppeldi og menntun barna sem yfirmaður felur honum
- Starfið felur í sér almenna kennslu
- Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun
- Reynsla af vinnu með börnum
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
- Frumkvæði í starfi
- Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
- Framúrskarandi íslenskukunnátta
- Styttri vinnuvika, stytting er að hluta tekin út á milli jóla og nýárs, í dymbilviku og vetrarfríum
- Frítt í sund
- Frítt fæði












