

Starfsmaður í sérkennslu í Heilsuleikskólanum Fífusölum
Heilsuleikskólinn Fífusalir er 6 deilda leikskóli í Salahverfi í Kópavogi. Þar starfa um 35 manns með 106 börnum. Leikskólinn er Heilsuleikskóli og starfar eftir Heilsustefnu Unnar Stefánsdóttir. Einnig er unnið eftir kenningum John Dewey og Berit Bae. Frábær starfsmanna- og barnahópur. Leitað er að metnaðarfullum einstakling sem hefur áhuga á að starfa í þverfaglegu teymi í stuðningi við börn með þroskafrávik.
Athygli er vakin á því að Kópavogsbær hefur samþykkt 6 tíma gjaldfrjálsan leikskóla ásamt auknum sveigjanleika og takmörkunum í opnunartíma leikskóla í dymbilviku, milli jóla og nýárs og vetrarfríum. Hér má sjá meira um það Sex tíma gjaldfrjáls leikskóli og aukinn sveigjanleiki | Kópavogsbær (kopavogur.is)
Einkunnarorð skólans eru: Virðing - Uppgötvun - Samvinna
Nánari upplýsingar um leikskólann má finna á http://fifusalir.kopavogur.is/
- Starfið felur í sér stuðning við börn með þroskafrávik.
- Unnið er í þverfaglegri teymisvinnu þar sem foreldrar gegna stóru hlutverki.
- Unnið er eftir einstaklingsnámskrá.
- Áhersla lögð á fagleg vinnubrögð.
- Þroskaþjálfamenntun eða önnur uppeldismenntun.
- Sérkennaramenntun.
- Ábyrgð í starfi og jákvætt viðhorf.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Lausnamiðuð hugsun.
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi.
- Íslenskukunnátta er skilyrði.
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins
Styttri vinnuvika, stytting að hluta til notuð í vetrarfrí, milli jóla og nýárs og dymbilviku
Frír matur












