

Launa- og rekstrarfulltrúi
Barna- og fjölskyldustofa leitar að metnaðarfullum og nákvæmum einstaklingi í stöðu launa- og rekstarfulltrúa. BOFS er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður sem sinnir mikilvægum verkefnum í þágu velferðar barna og fjölskyldna um allt land.
Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra fjármála- og mannauðssviðs og verður viðkomandi einn af þremur launa- og rekstrarfulltrúum hjá stofnuninni. Starfið felur meðal annars í sér launavinnslu fyrir bæði dagvinnu- og vaktavinnufólk og krefst því góðrar þekkingar á ólíkum launa- og kjaratengdum þáttum. Um 100% starf er að ræða með fasta starfsstöð í Borgartúni.
-
Launavinnsla.
-
Bókhald og reikningagerð.
-
Bókun og frágangur fylgiskjala vegna innkaupakorta.
-
Bókhaldsmerkingar og samþykktir reikninga.
-
Innkaup.
-
Samskipti við starfsfólk og viðskiptamenn
-
Önnur tilfallandi verkefni á fjármála- og mannauðssviði.
-
Menntun sem nýtist í starfi.
-
Reynsla af sambærilegu starfi.
-
Reynsla af launavinnslu vaktavinnufólks er kostur.
-
Góð íslenskukunnátta.
-
Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
-
Sveigjanleiki og hæfni til að aðlagast breytingum.
-
Frumkvæði og áhugi á að tileinka sér nýjar lausnir og aðferðir og þróa og bæta verkferla.
-
Hæfni til að sjá tækifæri til einföldunar, hagræðingar og aukinnar sjálfvirkni.
-
Nákvæmni, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
-
Jákvætt viðhorf og þjónustulund.
Íslenska










