

Aðalbókari
Steypustöðin leitar að einstaklingi sem hefur góða þekkingu á bókhaldi og hefur metnað fyrir því að tryggja vönduð vinnubrögð og áreiðanlegar fjárhagsupplýsingar.
Aðalbókari gegnir lykilhlutverki í fjármálum Steypustöðvarinnar og tengdum félögum og hefur umsjón með daglegu bókhaldi og afstemmingum. Starfið felur í sér náið samstarf við aðra starfsmenn innan fjármálasviðs sem og annað starfsfólk félagsins.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Yfirumsjón með daglegu fjárhags- og lánadrottnabókhaldi Steypustöðvarinnar og tengdra félaga
- Umsjón með reglubundnum afstemmingum
- Umsjón með virðisaukaskattsskilum og öðrum lögbundnum skilum
- Aðstoð við undirbúning gagna vegna ársuppgjörs og samskipti við endurskoðendur
- Eftirfylgni með fjárhagsupplýsingum og stuðningur við stjórnendur
- Þróun og umbætur á verkferlum í bókhaldi og uppgjöri
- Þátttaka í innleiðingu og þróun fjármála- og bókhaldskerfa
- Leiðbeiningar og stuðningur við samstarfsfólk í bókhaldi og öðrum deildum
- Önnur verkefni á sviði fjármála og bókhalds í samráði við fjármálastjóra
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi, s.s. á sviði bókhalds, reikningshalds eða viðskipta
- Haldbær reynsla af bókhaldi og uppgjörsvinnu
- Þekking og reynsla á Business Central
- Góð almenn tölvukunnátta, sérstaklega í Excel
- Lausnamiðuð og umbótadrifin hugsun
- Hæfni til að forgangsraða og standa skil á verkefnum innan tímamarka
- Greiningarhæfni og nákvæmni
- Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð samskiptafærni og þjónustulund
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Fríðindi í starfi
- Námskeið og fræðsla
- Líkamsræktarstyrkur
- Hádegismatur
- Fjölbreytt verkefni
- Jákvætt og hvetjandi vinnuumhverfi
Allar umsóknir skulu berast í gegnum ráðningarkerfi Alfred.is og þurfa að innihalda ferilskrá ásamt kynningarbréfi.
Allar nánari upplýsingar um starfið veitir Elísabet Ólöf Allwood, Framkvæmdarstjóri Fjármála í gegnum netfangið [email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 5. október nk.
Um Steypustöðina
Steypustöðin var stofnuð árið 1947 og eru aðalstöðvar félagsins á Malarhöfða 10 Reykjavík. Steypustöðin er með útibú á nokkrum stöðum eins og Hafnarfirði, Selfossi, Helguvík, Borgarnesi og Þorlákshöfn ásamt tveimur færanlegum Steypustöðvum.
Eins og nafnið gefur kynna til er meginstarfsemi félagsins framleiðsla og afhending á steypu. Félagið rekur einnig helluverksmiðju, flotbíla fyrir flotmúr, múrverslun, efnisvinnslu og stærstu einingaverksmiðju landsins í Borgarnesi.
Hjá félaginu starfa nú um 300 starfsmenn.
Íslenska
Enska










