Rými
Rými
Rými

Lagerstarfsmaður

Rými óskar eftir að ráða starfsmann á lager. Leitað er að skipulögðum, sjálfstæðum og líkamlega hraustum einstaklingi með góða samskiptahæfni. Lagerinn er staðsettur á Gylfaflöt 2-4, 112 Reykjavík.

Rými ehf. er fjölskyldufyrirtæki sem hefur verið starfandi frá árinu 1936. Hjá fyrirtækinu starfar samhentur hópur starfsfólks með áratuga reynslu af ráðgjöf, hönnun, þjónustu og uppsetningum á sviðum verslunarinnréttinga, lagerbúnaðar, skjalageymslutækni og búnaði fyrir iðnað, verkstæði, sveitarfélög og opinberar stofnanir.

Helstu verkefni:

  • Vörumóttaka og frágangur á vörum
  • Tiltekt pantana
  • Þrif og frágangur í vöruhúsi
  • Tilfallandi samsetningar á vörum fyrir afhendingu
  • Önnur almenn lagerstörf

Hæfniskröfur:

  • Gott líkamlegt atgervi
  • Reynsla af sambærilegu starfi
  • Skipulagshæfileikar
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
  • Vinnuvélaréttindi kostur

Um fullt starf er að ræða og er vinnutími frá kl. 08:30-16:30 alla virka daga.

Umsóknarfrestur er til og með 1. september 2025, en unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og henni þarf að fylgja starfsferilskrá. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.

Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veitir Birna Dís Bergsdóttir ([email protected]) í síma 511-1225.

Auglýsing birt14. ágúst 2025
Umsóknarfrestur1. september 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Gyflaflöt 2-4
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.LagerstörfPathCreated with Sketch.Líkamlegt hreystiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Vinnuvélaréttindi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar