
Jafningjafræðari í Jafningjafræðslu Hins Hússins 2026
Fræðslu- og forvarnarstarf fyrir ungt fólk
Jafningjafræðsla Hins Hússins auglýsir eftir ábyrgu, metnaðarfullu og skemmtilegu ungu fólki í sumarstarf. Starfið er lifandi, krefjandi og skemmtilegt. Frábært tækifæri fyrir þau sem hafa áhuga á að leggja sitt af mörkum og hafa góð áhrif út í samfélagið. Jafningjafræðarar starfa í 8 vikur yfir sumarið og fræða meðal annars í vinnuskóla- og félagsmiðstöðvahópum.
Umsókn:
Með umsókninni á að fylgja 2 mínútna myndband. Í þessu myndbandi áttu að segja frá þér sjálfum/ri/u og af hverju þú sækir um starfið.
Ef þú lendir í vandræðum er hægt að sleppa því að senda það inn í gegnum ráðningarvef Reykjavíkurborgar og hlaða upp myndbandinu inni á https://wetransfer.com/ og senda myndbandið í tölvupósti á netfangið [email protected]
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkur og Sameykis.
Starfshlutfall er 100% í 8 vikur.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jóna Helga Ástudóttir, verkefnastjóri Jafningjafræðslunnar í Hinu Húsinu, í gegnum netfangið [email protected].
- Fræðsla á vettvangi ungs fólks
- Fjölbreytt forvarnarverkefni meðal ungs fólks
- Vera jákvæð og góð fyrirmynd
- Umsækjendur þurfa að vera á aldrinum 16-19 ára (fædd 2007, 2008 og 2009).
- Umsækjendur þurfa að hafa lögheimili í Reykjavík.
- Mikilvægt er að þeir sem verða ráðnir geta unnið allt starfstímabilið (26. maí til 20. júlí).
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.
Íslenska
Enska










