

Íþróttakennari óskast í hlutastarf
Snælandsskóli er heildstæður um 480 nemenda grunnskóli staðsettur í Fossvogsdal. Skólinn byggir á langri hefð fyrir framsæknu og árangursríku skólastarfi þar sem áhersla hefur verið lögð á þátttöku í margs konar þróunar- og nýbreytniverkefnum í gegnum tíðina. Skólinn er Grænfána skóli í samvinnu við Landvernd, skólinn styðst við Olweusaráætlunina gegn einelti og þá er skólinn líka Réttindaskóli Unicef.
Einkunnarorð skólans eru: Viska – virðing – víðsýni – vinsemd.
Starfssvið og helstu verkefni
Snælandsskóli óskar eftir íþróttakennara í hlutastarf skólaárið 2026-2027.
Menntunar- og hæfniskröfur
Grunnskólakennari með sérhæfingu í íþróttakennslu.
Kennslureynsla og/eða reynsla af starfi með börnum og unglingum er æskileg sem og reynsla af þjálfun barna og unglinga.
Þolinmæði og framúrskarandi hæfni í samskiptum.
Viðkomandi þarf að vera skipulagður, sýna sjálfstæði og frumkvæði í starfi.
Stundvísi og áreiðanleiki er skilyrði.
Áhugi á að vinna með fjölbreytta nemendahópa.
Umsækjandi þarf að vera tilbúinn að vinna eftir stefnu skólans.
Góð færni í íslensku er nauðsynleg.
Ráðningartími og starfshlutfall
Ráðið verður í stöðuna fyrir skólaárið 2026-2027 og viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Um er að ræða 10 tíma kennslu á viku sem er um 40% stöðuhlutfall. Gæti hentað nemum sem eru að ljúka íþróttakennaranámi eða samhliða annarri þjálfun.
Aðrar upplýsingar
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Bent er á að samkvæmt lögum verða umsækjendur að skila inn sakavottorði.
Tekið verður mið af jafnréttisstefnu Kópavogsbæjar við ráðningu í starfið.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Brynjar M. Ólafsson skólastjóri í síma 860-3526 eða netfangið [email protected].
Tekið er á móti starfsumsóknum í gegnum ráðningarvefinn alfred.is.
Starfsfólk hjá Kópavpgsbæ fær frítt í sundlaugar Kópavogs.
Íslenska










