Flóaskóli
Flóaskóli
Flóaskóli

Kennarastöður við Flóaskóla

Flóaskóli er staðsettur í Villingaholti í Flóahreppi, í um 15 mínútna akstursfjarlægð frá Selfossi. Í skólanum eru um 110 nemendur í 1.-10. bekk og um 30 starfsmenn. Við skólann starfar öflugur og metnaðarfullur hópur fólks sem vinnur samhent að því að skapa jákvætt og uppbyggjandi vinnuumhverfi, hlúa vel að nemendum og stuðla að því að þeir nái að vaxa og dafna í námi og starfi. Í Flóaskóla er lögð áhersla á einstaklingsmiðað nám, teymiskennslu, leiðsagnarnám og öfluga stoðþjónustu. Mikil áhersla er á list- og verkgreinar. Unnið er markvisst með samskipti og líðan nemenda.

Í boði er:

  • Tímabundið starf dönskukennara að lágmarki 45% staða en möguleiki á hærra starfshlutfalli.
  • Starf smíðakennara að lágmarki 35% staða en möguleiki á hærra starfshlutfalli.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ eða viðeigandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar veitir Þórunn Jónasdóttir skólastjóri í síma 7718342 eða í tölvupósti á [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 21.ágúst 2026, ráðið verður í starfið eins fljótt og unnt er.

Helstu verkefni og ábyrgð

Að skipuleggja nám og kennslu nemenda í samráði við skólastjórnendur og samstarfskennara.

Að vinna í teymi með öðrum starfsmönnum skólans.

Að stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra/forráðamenn og starfsfólk skólans.

Að stuðla að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og annað samstarfsfólk.

Menntunar- og hæfniskröfur

Kennari, uppeldismenntun eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi, leyfisbréf til kennslu, reynsla af kennslu æskileg.

Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum.

Góð íslenskukunnátta og færni í upplýsinga- og tæknimálum.

Skipulögð vinnubrögð og hæfni í samvinnu.

Frumkvæð, sjálfstæði í vinnubrögðum og vilji til að leita nýrra leiða í skólastarfi.

Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.

Stundvísi og samviskusemi.

 

Auglýsing birt7. ágúst 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Flóaskóli Villingaholti
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar