Suðurnesjabær
Suðurnesjabær

Íþróttakennari í Gerðaskóla

Gerðaskóli auglýsir eftir kennara í íþróttakennslu en um er að ræða 100% starf, viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Gerðaskóli leitar eftir metnaðarfullum kennurum sem vilja ná góðum árangri í skólastarfi.
Í Gerðaskóla eru um 250 nemendur. Við skólann starfa áhugasamir og metnaðarfullir starfsmenn. Lögð er áhersla á að skapa námsumhverfi þar sem allir eru virkir, öllum líði vel og allir læri að bera virðingu fyrir sjálfum sér, öðrum og umhverfi sínu.

Gildi skólans eru; virðing – ábyrgð - árangur – ánægja

Skólinn er heilsueflandi grunnskóli sem vinnur eftir stefnunni Jákvæður agi með það að markmiði að allir fái tækifæri til að vera besta útgáfan af sjálfum sér í leik og starfi. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu skólans, www.gerdaskoli.is

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf kennara (fylgi með umsókn)
  • Reynsla af kennslu í grunnskóla kostur
  • Metnaður og einlægur áhugi á að vinna með börnum og unglingum á faglegan, fjölbreyttan og skapandi hátt
  • Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Áhugi og metnaður fyrir góðum foreldrasamskiptum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Skapandi hugsun og áhugi á að starfa í metnaðarfullu umhverfi.
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Auglýsing birt26. september 2025
Umsóknarfrestur8. október 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Garðbraut 90, 250 Garður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar