

Iðjuþjálfi óskast til starfa
Heilsuvernd Dvöl-Endurhæfing og Heilsuvernd Vífilsstaðir óska eftir að ráða iðjuþjálfa til starfa. Starfið felur með sér að móta og leiða áherslur tengt iðju- og félagsstarfi í tveimur rekstrareiningum Heilsuverndar. Um fullt starf eða hlutastarf er að ræða eða samkvæmt samkomulagi.
Á Heilsuvernd Dvöl - Endurhæfingu og Heilsuvernd Vífilsstöðum eru rekin biðrými fyrir þá einstaklinga sem lokið hafa meðferð á Landspítalanum og hafa ekki heilsu til að búa í sjálfstæðri búsetu. Þjónustan felur í sér að veita þeim skjólstæðingum sem dvelja hjá okkur þá umönnun, þjálfun og eftirlit sem þeir þurfa, á meðan þeir bíða eftir varanlegu búsetuúrræði.
Heilsuvernd er ört stækkandi fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem hefur sérhæft sig í heilsu- og vinnuverndarstörfum, heilsugæsluþjónustu og heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða.
Við leitum að einstaklingi til starfa í fjölmenningarstarfshóp okkar sem hefur jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi, er sjálfstæður í vinnubrögðum og er tilbúin að takast á við fjölbreytt verkefni í sterku teymi fagfólks undir merkjum Heilsuverndar. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
- Stuðla að aukinni vellíðan og lífsgæðum
- Aðstoð við athafnir daglegs lífs, félagsleg örvun og stuðningur í þeim tilgangi að hámarka lífsgæði notenda og viðhalda sjálfstæði þeirra
- Framkvæmir og skipuleggur Rai-möt
- Veitir ráðgjöf, fræðslu og þjálfun á hjálpartæki til skjólstæðinga og starfsfólks
- Starfinu fylgja mikil samskipti við skjólstæðinga, aðstandendur og samstarfsfólk og skal umhyggja og virðing endurspeglast í öllum þáttum starfsins
- Háskólapróf í iðjuþjálfun og starfsleyfi
- Áhugi á þjónustu við aldraða og þá sem búa við langvinn og/eða alvarleg veikindi er skilyrði og reynsla af því sviði er kostur.
- Jákvætt viðhorf og hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð samskipta- og skipulagshæfni
- Frumkvæði, jákvæðni og samstarfsvilji
- Þekking og reynsla af Rai-mati er kostur
- Almenn tölvukunnátta
- Góð íslenskukunnátta, bæði talað og skrifað mál
Íslenska
Enska










