Garðabær
Garðabær
Garðabær

Starfsmaður óskast á Ægisgrund

Auglýst er eftir starfsmanni á Ægisgrund heimili fatlaðs fólks í Garðabæ, sem jafnframt sinnir þremur einstaklingum í utankjarnaþjónustu. Um er að ræða lærdómsríkt og fjölbreytt starf þar sem unnið er á dag-, kvöld- og næturvöktum.

Starfshlutfall er 94% eða eftir samkomulagi. Einnig vantar tímavinnustarfsmenn.

Leitað er eftir jákvæðum og traustum einstaklingum (20 ára og eldri) sem hafa áhuga á málefnum fatlaðs fólks.

Æskilegt að viðkomandi sé sveigjanlegur og geti unnið aukavaktir.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Starfið felst í að veita íbúum einstaklingsmiðaðan stuðning við athafnir daglegs lífs innan og utan heimilis
  • Starfað er eftir lögum og reglugerðum sem tengjast málefnum fatlaðs fólks
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
  • Menntun sem nýtist í starfi er kostur svo sem félagsliða- eða stuðningsfulltrúanám
  • Reynsla af starfi með einstaklingum með fötlun æskileg
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Stundvísi og áreiðanleiki
  • Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi
  • Heilsuræktarstyrkur að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort eftir 3 mánuði í starfi

Árshátíð er starfsmönnum að kostnaðarlausu

Íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn

Auglýsing birt21. október 2026
Umsóknarfrestur28. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar