

Verkefnastjóri við vaktavinnugerð
Heilsuvernd Dvöl-Endurhæfing óskar eftir að ráða verkefnastjóra við vaktavinnugerð til starfa. Um fullt starf er að ræða eða samkvæmt samkomulagi. Verkefnastjóri ber ábyrgð á að hanna, samræma og halda utan um vaktaplön þannig að mönnun mæti þörfum vinnustaðarins á sama tíma og farið sé eftir lögum og kjarasamningum.
Á Heilsuvernd Dvöl - Endurhæfingu eru rekin biðrými fyrir þá einstaklinga sem lokið hafa meðferð á Landspítalanum og hafa ekki heilsu til að búa í sjálfstæðri búsetu. Þjónustan felur í sér að veita þeim skjólstæðingum sem dvelja hjá okkur þá umönnun, þjálfun og eftirlit sem þeir þurfa, á meðan þeir bíða eftir varanlegu búsetuúrræði.
Heilsuvernd er ört stækkandi fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem hefur sérhæft sig í heilsu- og vinnuverndarstörfum, heilsugæsluþjónustu og heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða.
Við leitum að öflugum einstaklingi í starf verkefnastjóra til starfa í fjölmenningarstarfshóp okkar sem hefur jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi og er tilbúin að takast á við fjölbreytt verkefni í sterku teymi fagfólks undir merkjum Heilsuverndar.
- Hönnun og gerð vaktskráa: Útfærsla á reglulegu vaktaplani sem tryggir rétta mönnun og tekur mið af óskum starfsmanna
- Eftirfylgni með kjarasamningum: Tryggja að vaktavinnugerð uppfylli ákvæði um hvíldartíma og önnur réttindi
- Kerfisstjórnun: Umsjón og vinna í vaktakerfi MTP
- Breytingastjórnun og afleysingar: Bregðast við veikindum, leyfum eða skyndilegum mönnunarbreytingum
- Önnur verkefni tengt skráningu
- Menntun og reynsla af verkefnastjórnun
- Framúrskarandi skipulagshæfni
- Hæfni til að vinna með flóknar upplýsingar undir tímapressu
- Rík samskiptahæfni þar sem starfið krefst mikilla samskipta við starfsfólk og stjórnendur
- Haldbær þekking á kjarasamningum vaktavinnufólks og vinnulöggjöf
- Frumkvæði, jákvæðni og samstarfsvilji
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð kunnátta í íslensku og ensku
Íslenska
Enska

