
Náttúrufræðistofnun
Á Náttúrufræðistofnun starfa tæplega 80 manns við rannsóknir, kortlagningu og vöktun á náttúru landsins. Starfsandi á stofnuninni er góður og er leitast við að bjóða fjölskylduvænan vinnustað. Við ráðningar í störf hjá Náttúrufræðistofnun er tekið mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar. Starfsstöðvar Náttúrufræðistofnunar eru fimm, í Garðabæ, á Akranesi, við Mývatn, á Breiðdalsvík og Akureyri.
Húsráður í Garðabæ
Náttúrufræðistofnun auglýsir laust til umsóknar 50% starf húsráðs á starfsstöð stofnunarinnar í Garðabæ. Starfið felst í almennri umsjón með húsnæði, bifreiðum og húsbúnaði ásamt þjónustu við starfsfólk þeirra stofnana sem hafa starfsstöð í húsnæðinu. Auk þess er viðkomandi tengiliður vegna aðkeyptrar þjónustu s.s. ræstingar, sorphirðu og fleira.
Leitað er að þjónustulunduðum og handlögnum einstaklingi með jákvætt viðhorf, sem getur unnið sjálfstætt.
Starfið heyrir undir sviðsstjóra rekstrar og mannauðs.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg umsjón og eftirlit með húsnæði, lóð, bifreiðum og húsbúnaði
- Umsjón með sorphirðu, umhirðu á lóð, snjómokstri og hálkuvörnum
- Er tengiliður við verktaka og fyrirtæki vegna þjónustusamninga
- Umsjón með smærri vöruinnkaupum og rekstrarþáttum
- Ýmis aðstoð við starfsfólk, sendiferðir og móttaka sendinga.
- Er öryggivörður á starfsstöð stofnunarinnar í Garðabæ
- Ýmis önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsreynsla og þekking sem nýtist í starfi
- Gild ökuréttindi
- Samskiptafærni til að skiptast á almennum upplýsingum við starfsfélaga og viðskiptavini
- Jákvætt viðhorf og þjónustulund
- Geta til að vinna sjálfstætt eftir skipulagi vinnustaðar og tímaplani
- Iðnmenntun er kostur
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
- Hreint sakavottorð
Auglýsing birt20. febrúar 2026
Umsóknarfrestur2. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Urriðaholtsstræti 6-8, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
HandlagniHreint sakavottorðÖkuréttindiSjálfstæð vinnubrögðSnyrtimennska
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar



