Kea Hótelrekstur ehf
Kea Hótelrekstur ehf
Kea Hótelrekstur ehf

Húsvörður

Hótel Kea leitar að starfsmanni í starf húsvarðar á Akureyri.

Hjá Keahótelum ríkir góður starfsandi og sækjumst við eftir að ráða jákvæða einstaklinga með brennandi áhuga á ferðaþjónustu til liðs við okkur. Viðkomandi þarf jafnframt búa yfir ríkri þjónustulund og metnaði þar sem ásýnd og viðhald fasteignar geta skipt sköpum í upplifun gesta.

Starfssvið

  • Umsjón með viðhalds- og öryggismálum á húsnæði og búnaði
  • Umsjón og eftirfylgni með iðnaðarmönnum í stærri verkum
  • Almennt viðhald á herbergjum og alrýmum
  • Ábyrgð á góðu aðgengi að hóteli og snyrtilegu útisvæði
  • Ábyrgð á sorplosun og þrif á sorpgeymslum
  • Kostnaðareftirlit er varðar viðhald og viðgerðir í samráði við hótelstjóra
  • Innkaup og önnur erindi er varða almennan rekstur á hótelinu
  • Aðstoð við vörumóttöku
  • Ýmis önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Reynsla af sambærilegum störfum og er iðnmenntun kostur
  • Góð þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Að hafa auga fyrir smáatriðum og hreinlæti
  • Sjálfstæð vinnubrögð og geta til að vinna í hópi
  • Kurteisi, snyrtimennska og stundvísi
  • Hæfni til að takast á við nýjar og fjölbreyttar áskoranir
  • Gott vald á íslensku og ensku
  • Hreint sakarvottorð og bílpróf eru skilyrði

Hótel Kea er staðsett í hjarta Akureyrar og er hluti af Keahótel hótelkeðjunni. Hótelið er fallegt 104 herbergja hótel með morgunverðarsal og bar.

Keahótel ehf. er eitt af stærstu hótelfélögum landsins og rekur samtals tíu hótel. Hótel Borg, Sand Hótel, Apótek Hótel, Skuggi Hótel, Storm Hótel og Reykjavík Lights eru í Reykjavík, Hótel Grímsborgir í Grímsnesi, Hótel Kea á Akureyri, Sigló Hótel á Siglufirði og Hótel Katla í Vík í Mýrdal.

Sjá nánar um Hótel Kea

Keahótel er spennandi vinnustaður þar sem starfar samheldinn hópur með fjölbreyttan bakgrunn. Við leggjum áherslu gott viðmót, þjónustulund, metnað, hæfni, og frumkvæði með það að leiðarljósi að skapa eftirsóknarvert og skilvirkt vinnuumhverfi og ánægða gesti.

Umsóknarfrestur er til og með 1. mars.

Auglýsing birt13. febrúar 2026
Umsóknarfrestur1. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hafnarstræti 87-89, 600 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar