
Payday ehf.
Payday einfaldar reikningagerð, launagreiðslur, kröfustofnun, bókhald og skil á opinberum gjöldum fyrir sjálfstætt starfandi einstaklinga, lítil og meðalstór fyrirtæki.

Hugbúnaðarsérfræðingur
Payday leitar að lausnamiðaðri manneskju sem brennur fyrir forritun og hugbúnaðarþróun til að slást í hóp öflugs teymis sem þjónustar ört vaxandi hóp viðskiptavina.
Við leitum að öflugum forritara sem er fljótur að tileinka sér nýja þekkingu, hefur gagnrýna hugsun og ríka þjónustulund. Við leggjum áherslu á að umsækjandi sé framsækinn og nýti nýjustu tól, þar á meðal gervigreind, til að auka gæði og skilvirkni í sínu starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Taka þátt í að þróa, útfæra, forrita og prófa lausnir Payday.
- Greining, hönnun, nýþróun og bestun hugbúnaðar.
- Sjálfvirknivæðing hugbúnaðarferla, afhendinga, prófana og reksturs.
- Virk nýting á AI-hjálpartólum (t.d. Cursor, GitHub Copilot, Claude eða svipuðum lausnum) við hugbúnaðargerð.
- Önnur verkefni eftir samkomulagi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- 2-3 ára marktæk reynsla af hugbúnaðarþróun í atvinnulífinu er æskileg.
- Reynsla af notkun gervigreindar (AI) við forritun og þróun er skilyrði.
- Þekking og reynsla af .NET/C# og MSSQL er nauðsynleg.
- Þekking og reynsla af GIT, Azure og OAuth er kostur.
- Geta til að læra hratt á nýja tækni, öflug úrlausnarhæfni og greiningarhæfni.
- Lipurð í mannlegum samskiptum, frumkvæði og drifkraftur.
- Góð enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli.
Auglýsing birt12. maí 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Bæjarlind 14-16 14R, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
Tölvunarfræðingur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Tech Lead – Travel
Icelandair

Langar þig að vera AI Orchestrator
TACTICA

Forritari / hugbúnaðarþróunaraðili óskast í spennandi fiskeldis- og tækniverkefni
KAPP ehf

Tæknistjóri hugbúnaðarþróunar
Reykjavíkurborg

AI Solutions Engineer
atNorth

Hugbúnaðarsérfræðingur / Forritari
KAPP ehf

Sérfræðingur í hugbúnaðarprófunum (QA)
APRÓ

AI-first Full Stack Developer
TimeXtender

Back End / Fullstack Engineer
Abler - Sport Matters

Back-end Software Engineer
Bókun / Tripadvisor

Software Engineer
Fenris Creations

Web UI Specialist (front-end develpment)
Hugvit