Akureyri
Akureyri
Akureyri

Hríseyjarskóli: Umsjónarkennari

Laus er til umsóknar 70-100% staða umsjónarkennara við Hríseyjarskóla. Um er að ræða ótímabundið starf sem ráðið er í frá 1. ágúst 2025.

Ert þú einstaklingurinn sem við leitum að og langar þig til að vinna í litlu samfélagi? Ef svo er þá er hér einstakt tækifæri til að starfa í fámennum skóla þar sem kennt er í fámennum hópum til að mæta hverjum nemanda þar sem hann er staddur námslega.

Hríseyjarskóli er samrekinn leik- og grunnskóli með 14 nemendur í 1. – 10. bekk.

Framtíðarsýn skólans er að vera lærdómssamfélag þar sem nemendur, foreldrar og starfsmenn eru virkir þátttakendur og að allir sem komi skólanum á einn eða annan hátt, átti sig á þeim forréttindum sem smæð samfélagsins er og nálægðin við náttúruna býður uppá.

Skólinn er grænfána- og heilsueflandi skóli og er að innleiða uppbyggingarstefnuna.

Einkunnarorð skólans eru Hríseyjarskóli – skapandi samfélag

Við leitum að metnaðarfullum kennara sem er tilbúinn að starfa með okkur.

Við aðstoðum við að finna húsnæði.

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.hriseyjarskoli.is

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Kennari sinnir kennslu nemenda í samstarfi og samvinnu við aðra starfsmenn skólans og ber ábyrgð á starfi sínu gagnvart skólastjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla
  • Reynsla af kennslu í grunnskóla er kostur
  • Reynsla og áhugi á teymiskennslu
  • Góð þekking á kennslu- og uppeldisfræðum
  • Hefur á valdi sínu og er tilbúinn að beita fjölbreyttum kennsluaðferðum sem taka mið af mismunandi þörfum, áhuga og hæfileikum nemenda
  • Frumkvæði og góðir skipulagshæfileikar
  • Sveigjanleiki og víðsýni í starfi og hæfni í samskiptum
  • Reglusemi og samviskusemi
  • Stundvísi
  • Gott vald á íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli
  • Æskilegt er að viðkomandi hafi góða tölvu- og tæknikunnáttu
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu
Auglýsing birt27. júní 2025
Umsóknarfrestur20. júlí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hólabraut 152053, 630 Hrísey
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Sveigjanleiki
Starfsgreinar
Starfsmerkingar