NPA miðstöðin
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin

Hresst NPA aðstoðarfólk óskast

Ég er 62 ára maður með lömunar sjúkdóm, búsettur í Kópavogi ásamt konu og dóttur. Ég leita að lífsglöðum, traustum og opnum einstaklingi sem vill vera partur af mínu daglega lífi.

Óska ég eftir einstaklingi sem er reiðubúinn að vera mér til stuðnings á öllum þeim dögum, góðum sem slæmum, sem sjúkdómurinn minn kann að færa.

Um starfið:
Dagarnir mínir eru fjölbreyttir og misrólegir, stundum afslappaðir, stundum meira fjör. Ég þarf aðstoð við allar athafnir daglegs lífs og því er starfið bæði krefjandi en gefandi.

Þar sem ég á bíl með hjólastólalyftu er mikilvægt að þú hafir bílpróf og sért örugg/ur bak við stýrið.

Þar sem sjúkdómurinn minn veldur smám saman versnandi færni munu þarfir mínar breytast og því gæti umfang og eðli starfsins þróast með tímanum. Ég leita því að einstaklingi sem er sveigjanlegur, lausnamiðaður og fljótur að tileinka sér nýja hluti og starfshætti.

Ég er að leitast eftir fólki í 100% og 50% stöðu sem getur unnið dagvaktir frá 9-17 og einstakar kvöldvaktir frá 17-23. Viðkomandi þarf að geta hafið störf í byrjun janúar í síðasta lagi.

Kröfur:

  1. Bílpróf, reykleysi og hrein sakaskrá (skilyrði)
  2. Góð kunnátta í íslensku (skilyrði)
  3. Hress, jákvæður og opinn einstaklingur sem er til í allskyns verkefni
  4. Áreiðanleiki, aðlögunarhæfni, stundvísi og gott viðmót
  5. Reynsla í umönnunarstarfi er mikill kostur, en þó ekki skilyrði
  6. Kostur ef að viðkomandi er handlaginn
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoða við allar athafnir daglegs lífs
  • Keyra milli staða
  • Vera mér góður félagsskapur og stuðningur
Auglýsing birt17. desember 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Urðarhvarf 8, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar