Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Efra-Breiðholti

Vilt þú vinna í fjölskylduvænu umhverfi og vera hluti af öflugum hópi starfsmanna?

Heilsugæslan í Efra-Breiðholti auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi í 50-100% ótímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.

Við erum að leita að hjúkrunarfræðingi sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt, krefjandi og skemmtileg verkefni. Ef þú ert að leita að starfi þar sem enginn dagur er eins þá hvetjum við þig til þess að sækja um.

Einnig kæmi til greina fyrir viðkomandi að taka að sér aukavaktir á Upplýsingamiðstöð HH ef áhugi er fyrir slíku, meðfram starfinu í Efra - Breiðholti.

Helstu verkefni og ábyrgð

Megin starfssvið er skólaheilsugæsla í Fellaskóla (um 300 nemendur) ásamt almennri móttöku á heilsugæslustöð. Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess sinnir hann öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni.  

Við erum með móttöku sem sinnir fólki á öllum aldri, sinnum bráðaerindum, bókuðum tímum og símaráðgjöf. Hjúkrunarfræðingar sinna einnig erindum sem eru ekki bráð s.s. sárameðferð og heilsueflandi móttöku. Um er að ræða skemmtilegt starf í fjölmenningarlegu samfélagi. 

Heilsugæslan í Efra-Breiðholti leggur áherslu á einstaklingsmiðaða aðlögun og stuðning við nýja starfsmenn.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Reynsla af heilsugæsluhjúkrun kostur
  • Þekking og áhugi á heilsueflingu og forvarnarstarfi
  • Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki
  • Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
  • Reynsla og áhugi á teymisvinnu
  • Íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Heilsustyrkur
  • Stytting vinnuvikunnar
  • Tækifæri til sí- og endurmenntunar
Auglýsing stofnuð23. apríl 2024
Umsóknarfrestur13. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaMeðalhæfni
Staðsetning
Hraunberg 6, 111 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.HjúkrunarfræðingurPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Skipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar