
Klíníkin Ármúla ehf.
Klíníkin er sérhæfð lækninga- og heilsumiðstöð og er staðsett í Ármúla 9, 108 Reykjavík. Við Klíníkina starfa þrautreyndir sérfræðilæknar og hjúkrunarfræðingar sem öll leggja sig fram við að veita persónulega þjónustu og hafa skjólstæðinga sína ávallt í öndvegi. Markmið Klíníkurinnar er að greina vanda, ráðleggja um leiðir til lausna og framkvæma nauðsynlegar aðgerðir. Samstarf reyndra lækna og hjúkrunarfræðinga með mikla starfsreynslu hérlendis og erlendis tryggir gæði þjónustunnar og öryggi sjúklinga. Aðbúnaður er til fyrirmyndar í Klíníkinni hvort sem um er að ræða læknamóttöku eða á skurðstofum og er mikil áhersla lögð á að tækjabúnaður uppfylli ströngustu kröfur á alþjóðlegan mælikvarða. Hugmyndafræði Klíníkurinnar byggist á teymisvinnu og því að sinna sérþörfum sjúklinga og veita heildarþjónustu frá greiningu, skurðaðgerð og þar til annari meðferð lýkur.
Hjúkrunarfræðingur
Klíníkin stækkar – leitum að metnaðarfullum hjúkrunarfræðingum!
Klíníkin Ármúla hefur nýverið tekið í notkun nýtt, stærra og glæsilegt húsnæði sem býður upp á frábæra aðstöðu fyrir sjúklinga og starfsfólk - því vantar okkur öfluga hjúkrunarfræðinga í okkar teymi!
Um starfið
- Starfshlutfall: 80-100%
- Ráðning er hugsuð til lengri tíma
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ákveða, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð
- Taka virkan þátt í þróun og uppbyggingu verkefna á deild
- Fylgjast með nýjungum í hjúkrun
- Taka þátt í þverfaglegri teymisvinnu
- Tryggja góða samfellda hjúkrun skjólstæðinga
- Stuðla að góðri samvinnu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Góð íslenskukunnátta
- Reynsla er æskileg
Auglýsing birt13. febrúar 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Ármúli 9, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
ÁreiðanleikiDrifkrafturFagmennskaFrumkvæðiHjúkrunarfræðingurHreint sakavottorðJákvæðniReyklausSjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar í starfsnámi - Spennandi störf á smitsjúkdómadeild
Landspítali

Viðskiptastjóri
Vistor

Hjúkrunarfræðingur eða sálfræðingur í heilbrigðisþjónustu við börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi og áföllum
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur í heimaöndunarvélateymi
Landspítali

Teymisstjóri - sálfræðingur/hjúkrunarfræðingur í heilbrigðisþjónustu við börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi og áföllum
Landspítali

Hefur þú brennandi áhuga á velferðar- og heilbrigðismálum?
Tryggingastofnun

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Fjörður
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Skrifstofumaður - Klínísk lífefnafræði, rannsóknakjarna
Landspítali

Meðferðaraðili - Geðheilsumiðstöð barna HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Viðskiptastjóri - stafræn markaðssetning
Vistor

Ertu sérfræðingur í hjúkrun?
Landspítali

Sumarstörf Velferðarsvið: Háskólamenntaðir starfsmenn
Akureyri