Heilsuvernd Hjúkrunarheimili
Heilsuvernd Hjúkrunarheimili
Heilsuvernd Hjúkrunarheimili

Hjúkrunarfræðingar - sumarstörf

Heilsuvernd Hjúkrunarheimili óska eftir að ráða hjúkrunarfræðinga til sumarstarfa á Hlíð og í Lögmannshlíð. Við leitum að einstaklingum sem hafa jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi, eru sjálfstæðir í vinnubrögðum en vilja um leið vera hluti af sterku teymi og gjarnan vinna að nýjum hugmyndum og framþróun. Í boði er dagvinna sem og vaktavinna og starfshlutfall eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn hjúkrunarstörf og ábyrgð skv. lögum og reglugerðum
  • Ábyrgð á að hjúkrun sé veitt í samræmi við hugmyndafræði Eden og skilgreind gæðaviðmið í þeim tilgangi að hámarka lífsgæði íbúa og viðhalda sjálfstæði þeirra
  • Eftirlit og mat á gæðum hjúkrunar
  • Starfinu fylgja mikil samskipti við íbúa, aðstandendur og samstarfsfólk og skal umhyggja og virðing endurspeglast í öllum þáttum starfsins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Fullgilt próf og íslenskt starfsleyfi sem hjúkrunarfræðingur
  • Áhugi á hjúkrun og þjónustu við aldraða og þá sem búa við langvinn og/eða alvarleg veikindi er skilyrði og kostur að búa yfir reynslu á því sviði
  • Vilji og áhugi til að starfa eftir Eden hugmyndafræðinni
  • Reynsla og þekking á sviði líknar- og lífslokameðferðar er kostur
  • Frumkvæði sjálfstæð vinnubrögð og hæfileikar í mannlegum samskiptum
  • Að geta unnið sem hluti af heild og með öðrum í þeim tilgangi að hámarka árangur
  • Góð kunnátta í íslensku
Auglýsing birt9. janúar 2026
Umsóknarfrestur15. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Austurbyggð 17, 600 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar