Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Hefur þú áhuga á að sinna viðhaldi tæknibúnaðar á Keflavíkurflugvelli?

Við hjá Isavia leitum að öflugum og metnaðarfullum rafvirkja til starfa við sérhæfð rafvirkjastörf (smá- og lágspennu). Viðkomandi mun sinna fyrirbyggjandi viðhaldi, bregðast við bilunum og skrá viðhaldssögu og notkun varahluta í viðeigandi kerfi. Rafvirki í sérhæfðu viðhaldi styður við öruggan og skilvirkan rekstur flugvallarins og býðst að ganga bakvaktir þegar reynsla og þekking hefur hlotist af bilanagreiningum og viðgerðum.

Starfsstöð er á Keflavíkurflugvelli en við bjóðum við upp á rútuferðir milli höfuðborgarsvæðisins og flugvallarins fyrir starfsfólk Isavia.

Helstu verkefni:

  • Viðhald á fjölbreyttum rafbúnaði flugvallarins
  • Eftirlit með eignum og bilanagreiningar
  • Styðja við uppsetningu eigna
  • Skráning viðhaldssögu og notkun á varahlutum
  • Önnur tilfallandi verkefni

 Hæfniskröfur:

  • Sveinspróf í rafiðngreinum eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Íslensku- og enskukunnátta skilyrði
  • Góð samskiptafærni og jákvæðni
  • Frumkvæði, þjónustulund og skipulögð vinnubrögð
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Metnaður og vandvirkni í starfi

Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.

Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.

Umsóknarfrestur er til og með 8. mars 2026.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Samson Jóhannsson, hópstjóri sérhæfðs viðhalds, [email protected].

Auglýsing birt24. febrúar 2026
Umsóknarfrestur8. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar