Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands

Hagfræðingur

SEÐLABANKI ÍSLANDS óskar eftir að ráða hagfræðing á svið hagfræði og peningastefnu.

Svið hagfræði og peningastefnu hefur umsjón með greiningu á þróun innlendra og erlendra efnahags- og peningamála, gerir þjóðhags- og verðbólguspár og áhættumat sem liggja til grundvallar mótun peningastefnunnar. Greining á stöðu og efnahagshorfum hverju sinni er birt í ritinu Peningamálum og enskri útgáfu þess Monetary Bulletin. Jafnframt tekur sviðið þátt í mótun stefnu í gengis- og peningamálum og stundar rannsóknir á sviði efnahags- og peningamála.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Rannsóknir á sviði peninga- og þjóðhagfræði
  • Þróun og viðhald spálíkana
  • Þátttaka í gerð verðbólgu- og þjóðhagsspáa bankans
  • Vinna í tengslum við greiningu og skrif í Peningamál
  • Þátttaka í innlendu og erlendu samstarfi
  • Tilfallandi verkefni og ráðgjöf á ábyrgðasviðum Seðlabankans
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meistarapróf í hagfræði
  • Reynsla af rannsóknum á sviði peninga- og hagfræði
  • Reynsla af notkun tölfræðiforrita í hagrannsóknum
  • Reynsla af notkun spálíkana er kostur
  • Gott vald á mæltu og rituðu máli, bæði á ensku og íslensku
  • Góð hæfni í að setja fram fræðilegt efni á skýran hátt
  • Lipurð í samskiptum og góð hæfni til að vinna sjálfstætt og með öðrum
  • Frumkvæði, nákvæmni í vinnubrögðum og metnaður í starfi
Auglýsing birt5. nóvember 2025
Umsóknarfrestur24. nóvember 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Kalkofnsvegur 1, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.FræðigreinarPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.RannsóknirPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar