

Glimrandi góður kennari óskast
Nú er tækifærið! Staða kennara við skemmtilegasta grunnskóla landsins er skyndilega laus til umsóknar, af ófyrirséðum ástæðum.
Meðal verkefna eru umsjón í 8.bekk og kennsla í náttúrufræði og útivist.
Kvíslarskóli í Mosfellsbæ er faggreinaskóli á unglingastigi (7. - 10. b.). Við skólann starfa 375 nemendur í 18 bekkjardeildum og um það bil 60 starfsmenn. Allt skólastarf Kvíslarskóla tekur mið af Menntastefnu Mosfellsbæjar, Heimurinn er okkar, en þar er barnið í öndvegi.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem allra fyrst. Um tímabundið 75-100% starf er að ræða, með góðum möguleika á fastráðningu fyrir réttu manneskjuna.
Allar upplýsingar um starfið veitir Heimir Eyvindarson skólastjóri í síma 8975964 og í gegnum netfangið [email protected].
Umsóknarfrestur er til 28. ágúst
Öllum umsóknum verður svarað.
Umsjón í 8. bekk, útikennsla, náttúrufræðikennsla
Leyfisbréf til kennslu á grunnskólastigi, góð skipulagshæfni og afburða hæfni í mannlegum samskiptum
Frábært mötuneyti og fyrirmyndar félagsskapur
Íslenska










